Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Blaðsíða 100
98
Loks flutti prófessor Sigurður Nordal fyrirlestur um Snorra
Sturluson og Noreg.
XI. SÖFN HÁSKÓLANS
Háskólabókasafn.
Bókaaukning varð allmikil, 4147 bindi auk smáprents. Fjár-
veiting til bóka úr Sáttmálasjóði var nær hin sama og árið
áður. Bókagjafir voru allmargar og þessar mestar: Frá háskóla-
bókasafninu í Osló 435 bd., frá háskólabókasafninu í Uppsöl-
um 192 bd., frá British Council 54 bd., eftirlátnar bækur Guð-
mundar Hannessonar próf., gjöf frá börnum hans, 230 bd.
auk verðmæts safns af sérprentum, eftirlátnar fuglafræðibæk-
ur Magnúsar Björnssonar náttúrufræðings, gjöf frá börnum
hans, rúmlega 100 bd. auk 100 sérprenta, bókagjöf frá Georg
Arnórssyni málara, Rvík, 260 íslenzk rit og um 100 rit erlend.
Þessum gefendum og fjölmörgum, sem eigi er rúm að telja,
getur safnið ekki önnur endurgjöld veitt en beztu þakkir.
Aðstoðarmenn við safnið um veturinn voru Oddur Árnason,
stud. med., er var röðunarmaður, og Ólafur Halldórsson, stud.
mag., er var spjaldskrárritari. Færð var til tugakerfis, Dewey-
kerfisins, skrásetning þeirra þriggja safndeilda, sem höfðu ver-
ið skráðar öðrum skráningarkerfum: guðfræði, læknisfræði og
lögfræði, og stóð endurskráning, sem af því leiddi, langt fram
eftir næsta vetri.
Bókanotkun nam í lestrarsal 11729 bindum, skráðir gestir
tæp 3 þúsund. En útlán urðu 1715 eða mun meiri en nokkru
sinni fyrr, og notendum fjölgaði.
Flokkaskipting salslána: blöð og rit almenns efnis 2176,
heimspeki 32, trúarbrögð 1081, lögfræði og félagsfræði 1277,
málfræði 3122, náttúrufræði 76, læknisfræði og verkleg fræði
1116, listir og íþróttir 17, bókmenntir og saga þeirra 2166 og
sagnfræði 666 bd.
Flokkaskipting útlána (innan háskólans og heim): blöð og