Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Page 131
129
tekin upp, að deildir skólans kepptu sín á milli. Keppt var um bikar
og þótti góð skemmtun.
Iþróttafélag stúdenta stóð fyrir keppni í frjálsíþróttum milli skóla,
sem síðastliðið ár. Menntaskólinn vann.
Kosin var skíðaskálanefnd og vallarnefnd, báðar til að vinna að
samnefndum málum.
íþróttahús háskólans var enn í smíðum.
Háskólastúdentum barst boð frá Uppsölum í Svíþjóð um þátttöku
í norrænu stúdentameistaramóti í frjálsíþróttum. Einn íslenzkur stúd-
ent keppti á mótinu. Hann keppti fyrir Hafnarháskóla; var þar við
nám.
Benedikt Jakobsson.
Lög nr. 21 28. marz 1947
um breyting á lögum um Háskóla Islands nr. 21
1. febr. 1936.
1. gr. — 28. gr. laga nr. 21 1. febr. 1936 orðist þannig:
Nemendur í íslenzkum fræðum geta valið um, hvort þeir ganga
undir kandídatspróf eða meistarapróf. Kennaramir í íslenzkum fræð-
um dæma einir um úrlausnir í meistaraprófi. Meistarar greiða sama
gjald fyrir prófvottorð sem kandídatar.
2. gr. — Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.
Lög nr. 23 23. aprfl 1946
um dósentsembætti í íslenzku nútíðarmáli og hagnýtri kennslu
í heimspekisdeild Háskóla Islands.
1. gr. — Við heimspekisdeild Háskóla íslands skal vera dósents-
embætti í íslenzku nútíðarmáli og hagnýtri íslenzkukennslu.
2. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.
Lög nr. 40 6. maí 1947
urn breyting á lögum nr. 44 27. júní 1941, um tannlæknakennslu
við læknadeild háskólans.
1. gr. — 2. gr. laganna hljóði þannig:
Kveða skal á um tilhögun kennslu og prófa í reglugerð og miðað
við það, að náminu verði lokið á 4—5 árum. Sérstaklega skal kveða
á um tilhögun tannlæknanáms lækna og læknastúdenta, sem lokið
hafa prófi í fleiri eða færri greinum almennrar læknisfræði, enda
17