Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Page 132
130
skulu þeir undanþegnir prófi tannlæknastúdenta í þeim greinum,
eftir því sem við getur átt.
2. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.
Lög nr. 86 10. okt. 1946
uni rannsóknarstofnun háskólans í búfjármeinafræði.
1. gr. — Að Keldum í Mosfellssveit skal stofna rannsóknarstöð,
er vinni að rannsóknum á búf jársjúkdómum og öðrum skyldum verk-
efnum, eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð. Stofnun
þessi nefnist: Rannsóknarstofnun háskólans í búfjármeinafræði, og
skal hún lúta læknadeild háskólans.
2. gr. — Forstöðumaður Rannsóknarstofnunar háskólans í bú-
fjármeinafræði skal skipaður af menntamálaráðherra, að fengnum
tillögum yfirdýralæknis íslands og læknadeildar háskólans.
3. gr. — Menntamálaráðherra heimilast, að fengnum tillögum
læknadeildarforstöðumanns og yfirdýralæknis, að ráða til stofnun-
arinnar dýralækna og sérfræðinga, eftir því sem fé er veitt til í
fjárlögum hverju sinni.
4. gr. — Forstöðumaður tekur laun eftir 5. flokki launalaga, en
aðrir sérfræðingar samkvæmt 6. flokki. Laun annarra starfsmanna
ákveðast af forstöðumanni, að fengnu samþykki fjármálaráðuneyt-
isins.
5. gr. — Menntamálaráðherra setur, að fengnum tillögum lækna-
deildar háskólans og tilraunaráðs búf járræktar, reglugerð um starf-
semi og starfssvið rannsóknarstofnunarinnar, sbr. 1. gr.
6. gr. — Þau ákvæði laga nr. 64 frá 7. maí 1940, sem koma í
bága við þessi lög, eru úr gildi fallin.
7. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.
Lög nr. 11 28. febr. 1947
um tilraunasíöð háskólaus í meinafræði.
1. gr. — Að Keldum í Mosfellssveit skal starfrækja tilraunastöð,
er vinni að rannsóknum á búfjársjúkdómum og öðrum skyldum
verkefnum, eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð. Stofnim
þessi nefnist Tilraunastöð háskólans í meinafræði, og skal hún lúta
læknadeild háskólans.
2. gr. — Forstöðumaður Tilraunastöðvar háskólans í meinafræði
skal skipaður af menntamálaráðherra að fengnum tillögum lækna-
deildar háskólans og yfirdýralæknis íslands.
3. gr. — Við stofnunina starfi 3 sérfræðingar auk forstöðumanns.