Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Page 133
131
Skal einn þeirra vera efnafræðingur. Skulu þeir skipaðir af mennta-
málaráðherra að fengnum tillögum læknadeildar, forstöðumanns til-
raunastöðvarinnar og yfirdýralæknis. Forstöðumaður á sæti og at-
kvæðisrétt á fundum læknadeildar.
4. gr. — Forstöðumaður tekur laun eftir 5. flokki launalaga, en
aðrir sérfræðingar samkvæmt 6. flokki. Laun annarra starfsmanna
ákveðast af forstöðumanni, að fengnu samþykki fjármálaráðuneyt-
isins.
5. gr. — Menntamálaráðherra setur, að fengnum tillögum lækna-
deildar háskólans og tilraunaráðs búfjárræktar, reglugerð um starf-
semi og starfssvið tilraunastöðvarinnar.
6. gr. — Ákvæði laga nr. 64 7. maí 1940 gilda ekki um stofnun
þessa.
Lög nr. 86 10. okt. 1946 eru úr gildi numin.
7. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.
Breyting á reglugerð fyrir Háskóla tslands
nr. 47 frá 30. júní 1942.
5. töluliður 32. gr. orðist þannig:
Dönsku, ensku, frakknesku, latínu, sænsku og þýzku. Kennslan
miðar að því að veita stúdentum haldgóða þekkingu í þessum tungu-
málum, með það fyrir augum, að þeir geti lokið bacchalauereorum
artium prófi samkv. 52. gr.
1. málsgrein 52. gr. orðist þannig:
Prófgreinar eru þessar:
1. íslenzka,
2. Danska.
3. Enska.
4. Frakkneska.
5. Latína.
6. Sænska.
7. Þýzka.
Staðfest 19. sept. 1946.