Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1949, Blaðsíða 12
10
að háskóla vorum megi auðnast að eiga sinn þátt í því að
vísa hinum ungu stúdentum veginn og ala þá upp í þeim anda,
er geri þá hæfa til baráttu fyrir frelsi og hamingju þjóðar
vorrar
Þá flutti prófessor Jón Steffensen erindi: „Nokkur atriði úr
fornsögu Noregs.“
Að því loknu mælti rektor:
Ungu stúdentar.
Ég býð yður alla velkomna, er nú bætast í hóp hinna aka-
demisku borgara. Þér eigið að baki yðar langt menntaskóla-
nám, en munuð vafalaust minnast þeirra ára með fögnuði,
þrátt fyrir margskonar erfiði og áhyggjur, er öllu námi eru
samfara. Þér hafið sigrazt á öllum prófraunum og hafið orðið
þess áskynja, að þér hafið tekið andlegum þroska með hverju
ári, aukið þekkingu yðar og öðlazt þá þjálfun, er geri yður hæfa
til háskólanáms. Nú standið þér á vegamótum og leggið út á
nýjar brautir. Björt framtíð brosir við yður, ef þér kunnið
fótum yðar forráð, með margskonar vonir og drauma, sem
kunna að rætast, og er það að miklu leyti komið undir yður
sjálfum, hvernig fara muni, því að mikil sannindi eru fólgin i
þeim orðum, að hver er sinnar gæfu smiður. Mjög fáar þjóðir
hlynna eins vel að vísindum sínum og Islendingar. Alþingi
veitir yður á hverju ári ríflegan námsstyrk og húsaleigustyrk,
og af háskólans hálfu hefur margt verið gjört til að bæta kjör
yðar og gera þroskaskilyrði yðar sem bezt. Nú eigið þér aðgang
að ágætu íþróttahúsi, sem háskólinn hefur varið miklu fé tii,
og er þess að vænta, að þér kunnið að færa yður í nyt hina
líkamlegu þjálfun, sem þér eigið nú völ á og er nauðsynleg
öllum mönnum og ekki sízt þeim, er leggja á sig andlegt erfiði
og verða tímum saman að sitja yfir bókum eða í kennslustund-
um. Iþróttaskyldan, er hvilir á stúdentum fyrstu tvö árin,
á að verða að ljúfum leik, er stúdentar iðki öll þau ár, er þeir
dveljast við háskólann, og raunar allt lífið, svo lengi sem þess
er kostur. Auk leikfimiæfinganna er hægt að leika badminton