Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1949, Síða 109
107
víkur og boðsmiða að Tjarnarbíó (að nánar tilteknum sýningum)
gegn framvísun stúdentaskírteinis.
Á síðastl. vori samdi stjóm stúdentaráðs við flugfélögin um fyrir-
greiðslu á millilandaflugferðum fyrir þá íslenzka stúdenta, er nám
stunda erlendis. Var samið um, að 25% afsláttur fengist gegn fram-
vísun á vottorði frá stúdentaráði.
Má geta þess, að þegar hafa milli 50 og 60 stúdentar notið þessara
hlunninda.
Stúdentagarðarnir.
Á síðastl. vori barst stúdentaráði Reglugerð fyrir stúdentagarðana
til athugunar. Samþykkti stúdentaráð nokkrar breytingar á henni,
m. a. þá, að garðprófastur skuli vera einhleypur og hafa aðeins
til afnota tvö herbergi eða eitt er samsvari tveimur. Áleit ráðið
það afar mikils vert og sanngirniskröfu stúdenta, að eigi yrði látið
meira húsrúm til handa embættismönnum garðanna en nauðsyn
krefði, þar sem stúdentum fer sífellt fjölgandi, og verður árlega
að neita fleiri og fleiri stúdentum um garðvist.
Skrifaði stúdentaráð garðstjóm um þetta mál, en því miður hefur
ekkert komið út af þessu. Ennfremur hafði ráðið með höndum
f járhagsáætlun fyrir garðana, er samin var af gjaldkera mötuneytis-
ins. Kom þar í ljós, að sökum aukins reksturskostnaðar myndi her-
bergjaleiga hækka nokkuð. Talaðist svo til milli ráðsins og gjald-
kera, að reynt yrði að hamla á móti reksturskostnaðinum með því
að ræsta herbergin annan hvem dag í stað hvers áður. Hefir þetta
komið til framkvæmda nú í vetur. Ennfremur talaði stjóm ráðs-
ins við símastjórann í Reykjavík s.l. vor og leitaði fyrir sér, hvort
hægt myndi að fá sjálfsala (automat) í sambandi við símann og
lækka þar með kostnaðinn við símann.
Einnig var spurzt fyrir um, hvort ekki væri hægt að fá fleiri
síma í garðana. Tók símastjóri dauflega í það, kvað svo margar
pantanir vera fyrir hendi.
En hins vegar hafði hann góð orð um að reyna að útvega sjálí-
salann, en það yrði þó bimdið því, að leyfi fengist hjá fjárhagsráði.
Norræna stúdentamótið.
Dagana 18.—25. júní síðastl. var hér haldið norrænt stúdentamót
og boðið til þess stúdentum frá hinum Norðurlöndunum. Til þess að
sjá um þetta mót var kosin sérstök nefnd.
Stjóm stúdentaráðs vill hér með þakka öllum þeim mörgu, er
lögðu fram sitt til þess, að þetta mál mætti verða öllum íslenzkum
stúdentum, háskóla vorum og þjóðinni í heild til gagns og sóma.