Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Qupperneq 121
119
andi flutning á lýsinu til Indlands. í þessum umræðum tók formað-
ur það sérstaklega fram, að I. S. R. ætti ekki að koma nálægt þessu
máli, og meirihluti ráðsins lætur einnig sömu skoðun í ljós við at-
kvæðagreiðslu um málið. í bréfi formanns til mín á skjali nr. 15 er
tekið fram, að I. S. R. sé „grein úr alþjóðasambandi stúdenta, I. U. S.,
sem kommúnistar í Prag veita forstöðu og Stúdentaráð Háskóla ís-
lands hefur aldrei átt aðild að né — a. m. k. fráfarandi ráð — á
neinn hátt viljað hafa samskipti við“. Fyrir þessu segir formaður
séu fundarsamþykktir.
Á farmskrá fyrir m.s. „Gullfoss“ hinn 3. marz s.l. á leiðinni Reykja-
vík—Kaupmannahöfn voru 15 tunnur af meðalalýsi til umhleðslu til
Prag í Tékkóslóvakíu. Sendandi var Stúdentaráð Háskóla íslands,
Reykjavík, en viðtakandi farmsins Intemational Student Relief
(I.S.R.), Voitesshá, Praha II.
Engin flutningsgjöld eða vátryggingargjöld hefur stúdentaráð
greitt fyrir sendingu þessa. Hins vegar hefur það greitt útflutnings-
gjöld að fjárhæð kr. 389.47.
Markaðsverð á meðalalýsi (kaldhreinsuðu þorskalýsi) var á þeim
tíma, er hér skiptir máli, £120-0-0 pr. tonn c.i.f. í Evrópuhöfn. Læt-
ur því nærri, að verðmæti farmsins hafi verið ca. ísl. kr. 15.900,00.
Stúdentaráði hefur ekki borizt nein viðurkenning eða þakkarbréf
vegna þessarar sendingar, hvorki frá I. S. R. né samtökum stúdenta
í Madras-fylki. Formaður stúdentaráðs segir í bréfi sínu á skjali
nr. 15, að hann viti sannast sagna ekkert um, hvar lýsið sé nú nið-
ur komið.
í sambandi við mál þetta verður ekki séð, að Boga Guðmunds-
syni hafi verið falin önnur störf en safna loforðum um lýsisgjafir.
Fundargerðina frá 14. janúar mætti e. t. v. túlka á þann veg, að hon-
um hafi einnig verið falin sending farmsins, þar sem ríkt var geng-
ið eftir því við hann, að tunnurnar yrðu greinilega merktar, svo að
á því gæti ekki leikið neinn vafi, hver væri raunverulegur sendandi
þeirra. En þótt þessi skilningur verði lagður í fundargerðina frá
14. janúar, þá tekur stúdentaráðsfundurinn frá 25. febrúar af öll tví-
mæli í þessum efnum. Þar er samþykkt tillaga frá formanni í þá
átt, að utanríkisritara verði falið að leita til S. Þ. með aðstoðarbeiðni
við flutning á lýsinu til áfangastaðar. í þessari fundargerð kemur
greinilega fram sá vilji stúdentaráðs, að afskiptum Boga af máli þessu
sé lokið, og einnig kemur það í ljós í fundargerðinni, að meiri-
hluti stúdentaráðs vill ekki þiggja aðstoð I. S. R. í þessum efnum.
Þrátt fyrir þessa skorinorðu viljayfirlýsingu stúdentaráðs hefst Bogi
samt handa með sendingu farmsins með aðstoð þeirra stúdentasam-
taka, sem stúdentaráð hafði hafnað. Allt, sem Bogi gerði varðandi