Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1964, Qupperneq 13
11
miklu gagni. Flyt ég gefendum þakkir fyrir þessa ágætu gjöf.
Hinn 23. okt. s.l. voru liðin 100 ár frá fæðingu Ólafíu Jó-
hannsdóttur, hins mikla mannvinar. Af því tilefni afhenti Hall-
dór Kr. Þorsteinsson, skipstjóri í Háteigi, Háskólanum af-
steypu af mynd af henni, er gert hefir Kristinn Pétursson
myndhöggvari. Stendur frummyndin nærri þeim vettvangi í
Óslóarborg, þar sem Ólafía vann hið frábæra mannúðar- og
mannbótastarf sitt. Óiafía var styrkur stuðningsmaður þess,
að stofnað var til háskólasjóðs Hins íslenzka kvenfélags árið
1894, og hafa styrkir úr þeim sjóði orðið að miklu gagni við
Háskólann, svo sem greint var frá á síðustu háskólahátíð.
Metur Háskólinn mikils þessa ágætu gjöf og þá góðvild í garð
Háskólans, er að baki býr. Myndin af Ólafíu er fallin til að
minna á eitt hið ágætasta mannúðarstarf, sem íslendingur
hefir unnið. Ólafía sá flestum betur, að „allt var ógert verk,
sem ekki studdi mannúð sterk“. Myndin af henni ætti að
styrkja skilning okkar hinna á þeim sannindum.
Þá hafa Eðlisfræðistofnun Háskólans borizt ýmsar gjafir að
undanförnu. Er það ekki sízt Eggert Briem verkfræðingur, nú
búsettur i Bandaríkjunum, sem hefir reynzt stofnuninni ötull
stuðningsmaður. Hefir hann gefið henni sveiflusjá og síðar
myndavél í tengslum við hana og enn fremur bifreið. Flyt ég
gefanda alúðarþakkir fyrir þessar ágætu gjafir og tryggð hans
við stofnunina.
Einnig hefir stofnunin notið mikilsverðrar fyrirgreiðslu frá
Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni í Vín, sem látið hefir í té
tæki til grunnvatnsrannsókna, þ. á m. tæki til geislamælinga, og
míög vandaðan massaspectrometer til mælinga á þungu vatni.
Einnig hefir stofnunin sent hingað til lands tvo sérfræðinga,
dr. Begemann og dr. Friedman, sem settu upp fyrrgreindan
massaspectrometer sumarið 1962. Þá hefir Eðlisfræðistofnunin
notið styrkja frá Vísindasjóði til segulmælinga, norðurljósa-
rannsókna og til undirbúnings aldursmælinga á bergi. Loks má
geta þess, að stofnunin nýtur árlegra framlaga um hendur Raf-
orkumálaskrifstofu til grunnvatnsrannsókna og um hendur
skrifstofu landlæknis til mælinga á geislavirkum efnum í mat-