Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1964, Side 129
127
Útgáfustarfsemi Stúdentaráðs.
í maí kom fyrsta blaðið út, samtals 24 síður, en því ritstýrðu Björn
Teitsson stud. mag. og Páll Skúlason stud. jur. Annað blað var gefið
út af Stúdentaráði í októberbyrjun, 8 síður, en í því voru nýstúdent-
ar boðnir velkomnir og helztu verk og verkefni Stúdentaráðs kynnt.
Stórt og myndarlegt blað, 56 síður, kom út 1. desember og annaðist
útgáfuna ritnefnd kosin á almennum stúdentafundi. Ritstjóri blaðs-
ins var Jón Oddsson stud. jur. í janúar kom síðan út fjórða blaðið,
16 síður, og var það fjölritað. Blað þetta var helgað einu málefni,
byggingu Hallgrímskirkju. Ritstjórar voru þeir Jón Oddsson og
Garðar Gíslason stud. jur.
Auk þessara fjögurra blaða hefur Stúdentaráð gefið „Vettvang
Stúdentaráðs“ út tvisvar sinnum á árinu.
Almennt félagslíf.
Ásamt Orator, félagi laganema, efndi Stúdentaráð til mælskunám-
skeiðs. Var það haldið á Gamla Garði, stóð í fjögur kvöld og endaði
með opnum málfundi. Meðal þeirra, sem aðstoðuðu og leiðbeindu á
námskeiðinu, voru þeir Ævar Kvaran leikari, Ólafur Egilsson lög-
fræðingur, Þorgeir Ibsen skólastjóri og Sigurður Líndal lögfræðingur.
Bókmenntakynningar voru tvær haldnar á árinu. Sú fyrri fór fram
föstudaginn 8. nóv., og kynnti þar rússneska ljóðskáldið I. Dolma-
tovsky rússneskar nútímabókmenntir.
Sú síðari fór fram í desember, í hátíðasal Háskólans. Var þá kynnt
jólaleikrit Þjóðleikhússins, Hamlet, eftir Shakespeare. Sverrir Hólm-
arsson stud. mag. kynnti leikritið með fyrirlestri og leikarar Þjóð-
leikhússins fluttu þætti úr verkinu.
Formaður bókmenntakynningarnefndar var Þorleifur Hauksson
stud. mag.
í nóvember var efnt til bridgemóts.
í byrjun nóvember efndi Stúdentaráð til kvöldvöku eða kynningar-
kvölds fyrir þá erlendu stúdenta, sem nám stunda hér við Háskólann.
Kvöldvaka þessi fór fram í setustofu Gamla Garðs og sóttu hana vel-
flestir erlendu stúdentanna svo og nokkrir innlendir, alls um 50
manns. Formaður S.H.Í. bauð fólk velkomið og flutti síðan stutt er-
indi um stúdentalíf á íslandi, hlutverk Stúdentaráðs og störf þess.
Bornar voru fram veitingar og íslenzk kvikmynd var sýnd.
B. Ýmis hagsmunamál stúdenta.
Lesrými.
Fátt hefur verið meira aðkallandi undanfarin ár en viðunandi
lestraraðstaða fyrir háskólastúdenta.