Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1956, Síða 77
75
IV: 1 stjórnlagafrœði og stjórnarfarsrétti: Skýrið 1. mgr. 79.
gr. stjórnarskrárinnar.
V. Raunhæft verkefni:
Nokkru áður en Helgi Jónsson, verzlunarmaður hér í bæ, varð 21
árs fór Björn Sæmundsson kaupmaður, föðurbróðir Helga, að velta
því fyrir sér, hvað hann ætti að gera fyrir frænda sinn af tilefni
þessara tímamóta í ævi hans. Helgi var lítt efnaður og foreldrar
hans báðir andaðir. Björn hafði að ýmsu leyti mætur á Helga, en
þótti hann nokkuð einráður og lítt hneigður til að þiggja ráð ann-
arra. Einkum var Björn því mjög mótfallinn, að Helgi og stúlka
nokkur, Halla Hallsdóttir að nafni, höfðu kunngert festar sínar.
Björn átti tvo uppkomna syni, Friðrik og Gísla, er báðir voru farnir
að heiman og giftir.
Eftir alllanga íhugun ákvað Björn að gefa Helga stofuhúsgögn og
fjárupphæð þá, er síðar greinir. Bjöm fór því til húsgagnaverzlunar-
innar h/f X og skoðaði húsgögn. Hann tók þó ekki lokaákvörðun
um kaup að sinni, en hafði þó einkum hug á að kaupa annað
tveggja: maghoníhúsgögn með bláu áklæði, er kostuðu kr. 12.000,00,
eða eikarhúsgögn með grænu áklæði, er kostuðu kr. 9.000,00. Bjöm
skýrði yfirmanni verzlunarinnar frá því, að síðar mundi hann láta
vita, hvor húsgögnin hann vildi. Þá var og ákveðið, að á fæðingar-
úegi Helga, 20. júlí 1954, skyldi h/f X senda þau húsgögn, er Björn
segði til um, heim til Helga að N-götu 11, ásamt bréfi frá Bimi til
Helga, er hljóðaði á þessa leið:
„Kæri frændi.
Ég sendi þér hjartanlegar heillaóskir og bið þig að þiggja þetta
.,drasl“ frá mér. Síðar í dag mun ég árétta óskirnar betur og prófa
„draslið".
Þinn einlægi frændi, Björn Sæmundsson".
Er Björn kom heim skrifaði hann Helga annað bréf, er var á
þessa leið:
„Kæri frændi.
Ég hefi í dag lagt á innlánsbók við Landsbanka íslands kr. 50.000,-
00, og er bókin á þínu nafni. Jafnskjótt og þú slítur festum ykkar
Höllu, getur þú sótt bókina, sem eign þína, en fyrr ekki, enda veiztu,
að mér er samband ykkar mjög á móti skapi“.
Hann sendi Helga síðan bréfið daginn eftir. Helga þóttu þetta all-
harðir kostir, en ekkert gerðist þó í málinu um stund.
Daginn fyrir fæðingardag Helga, sendi Bjöm Jón starfsmann sinn
til h/f X með þau boð að senda ætti Helga eikarhúsgögnin með græna
áklæðinu.
L_