Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 6
2
BÚNAÐARRIT
„honum þætti þat illa, er hann hafði enga munngát at
„gefa þeim. Þeir Egill voru mjög þyrstir af mæði. Tóku
„þeir upp askana, ok drukku ákaft skyrið — ok þó Egill
„miklu mest“. — Gisla sögu Súrssonar má færa til
vitnis um skyrgerð, þar sem sagt er frá aðförum Skeggja-
sona og Kolbjarnar, er þeir lögðu eld að húsum Þor-
bjarnar: „Nú taka þeir Gísli hafrstökkur tvær, og
„drepa þeim í sýrukerin og verjast svá eldinum", o. s.
frv-. Þá hefir og verið til skyr á Bergþórshvoli, er Njáls-
brenna átti sér stað. Það sannar skyrfundur Sigurðar
Vigfússonar, sem staðfestir meðal annars sannleiksgildi
þessara orða í Njálssögu: „Þá báru konur sýru í eld-
„inn ok slöktu niður fyrir þeim“. I Ljósvetningasögu
er getið um að Rindill hafi matast á þunnu skyri,
skömmu áður en hann var veginn af Eilifi. Grettissaga
skýrir ennfremur frá því, að Auðunn haíi borið skyr-
killi í fangi sér, þegar Grettir rétti fótinn fram af stokkn-
um og feldi Auðun. Á Flugumýri hefir eflaust verið
búið til skyr, þar sem Gizur jarl gat falið sig fyrir ó-
vinum sínum í sýrukeri. Auðvitað gæti sýra stafað frá
ostagerð engu síður en skyri. En hvað sem því liður,
þá er það víst, að forfeður vorir höfðu mikla skyrgeið.
I.
Búlgarskt skyr (Yoghurt).
Svo eg víki aftur að hinu búlgarska skyri og öðr-
um alkunnustu skyrtegundum, hefir frægð þeirra flogið
fjöllunum hærra hin síðari ár, og er það aðallega nð
þakka nokkrum visindamönnum, er fjallað hafa um
rannsóknir mjólkurafurða, og eru þeirra kunnastir Ori-
goroff og Metschnilcoft. Grigoroff, sem er búigarskur
læknir, vakti fyrstur manna athygli á því, að hið búig-
arska skyr lengdi lífið. Dró hann ályktun sina meðal
annars af því, að Búlgarar neyti skyrs manna mest, og
verði þar rúmlega einn maður af hundraði yfir 100 ára
að aldri. Hinn heimsfrægi vísindamaður Metsclmihoff