Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 25
BÚNAÐARRIT
21
. IV.
Skýrsla XII., IV., V. og VI.
í öllum félögunum er skýrsluárið nú síðari árin
miðað við 1. nóvember. Því sá eg enga ástæðu til að
hafa sérstakan dálk fyrir „skýrsluárið".
Tölu kúa í félögunum má sjá af skýrslu I. En á
þessum aðalskýrslum hefl eg bæði slept dálkinum „kýr
alls“ og „tala fullmjólkandi kúa“. Eg get búist við því,
að sumir muni sakna hins síðara, og er því rétt að
gera grein fyrir því, hvers vegna honum er slept. Með
fullmjólkandi kúm átti Guðjón sál. við þær kýr, er hann
reiknaði meðaltöl af. En þær kýr, er eg reiknaði með-
altöl af, eru mismargar, og innan sama félags eru það
oftast fleiri kýr, sem eg nota til að reikna af meðalnyt-
hæð og fóðurmagn, en til þess að reikna út meðalfeiti-
magn. Að setja aðra töluna, en elcki hina, þótti mér
villandi, og af því að mér flnst, lítíll fróðleikur í því
fyrir þorra manna að vita, af hvað mörgum kúm meö-
altalið sé reiknað innan hvers félags, hefi eg alveg slept
þeim dálki.
Þá stendur yfir þrem dálkum „arður kýrinnar8, og
yflr þeim svo aftur „mjólk kg.“, „feiti °/o“ og „smjör
kg.“. í öllum þessum dálkum standa meðaltöl, og
þau segja okkur, hvaða arð meðalkýrin í hverju félagi
heflr geflð það og það ár. Og til að finna þessi meðal-
töl er allur þorrinn af kúm félagsins notaður.
Mjólkurmagn meðalkýrinnar er fundið með því, að
leggja saman ársnyt allra meðaltalsnotandi kúa í fé-
laginu og deila í þá summu með tölu kúnna, sem nytin
er lögð.saman úr.
Meðalfeitin er samlögð summan af mjólkurfeiti allra
þeirra kúa innan félagsins, sem líkur eru til að rétt
feitirannsókn sé til um, deild með tölu kúnna. Smjörið
er svo að síðustu reiknað út eftir formúlunni (feitipró-