Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 126
122
BÚNAÐARRIT
haldin á Sveinsstöðum 2. júni. Voru þar sýndar 20
hryssur og 19 graðhestar. Fyrstu verðlaun voru engin
veitt. En fyrir 5 hesta voru veitt önnur verðlaun, og
þriðju verðlaun fyrir aðra 5. Fyrir 12 hryssur voru og
veitt önnur og þriðju verðlaun.
Hrossin voru í sæmilegu ásigkomulagi og allvæn.
Stærsti hesturinn var 140 cm., og tvær stærstu hryss-
urnar 138 cm.
Sýningin í Skagafirði var á Sauðárkrók 7. júní.
Þar voru sýndar 22 hryssur og 14 graðhestar. Engin
fyrstu verðlaun voru veitt; en nokkur hröss, hestar og
hryssur, fengu önnur og þriðju verðlaun.
Stærsti hesturinn, 4 vetra foli, var 138 cm., og
annar 3 vetra 133 cm. Stærsta hryssan var 138 cm..
Um hrútasýningarnar er það að segja, að í Húna-
vatnssýslu, Mýra og Borgarfjarðar sýslum, ásamt Bæjar-
hreppi í Strandasýslu, voru haldnar í haust 29 sýningar,
og sýndir voru 1188 hrútar alls. Á þessum sýningum
var Jón H. Þorbergsson af hálfu Búnaðarfélagsins.
Einnig voru haldnar 4 hrútasýningar í Þingeyjarsýslun-
um, og var Hallgrímur Þorbergsson á þeim fyrir hönd
félagsins. Þá var og haldin hrútasýning í Hvamms-
hreppi 1 V.-Sk., Hraungerðishreppi í Árnessýslu og 3
sýningar í Kjósarsýslu.
Kynbótaféiögin störfuðu flest hin sömu þetta ár
og árið næsta á undan.
Nautgripafélögin, sem nutu styrks fyrir starfsárið
frá 1. nóv. 1911 til 31. okt. 1912, voru 19 alls, með
samtals 2327 kúm. Stærst þeirra er nautgripafélag Ása-
hrepps í Rangárvallasýslu með um 360 kýr. Þar næst
er nautgripafélag Hrunamannahrepps í Árnessýslu með
um 200 kýr. Styrkurinn til félaganna nam 3266 kr.
alls. — Félögin eru: 2 í V.-Sk., 3 í Rangárv., 5 í
Árness., 3 í Borgarfj.s., 1 í Dalas., 1 í Barðastrandars.,
2 í Eyjaf. og 2 í S.-Þingeyjars.