Búnaðarrit - 01.01.1914, Side 171
BÚNAÐARRIT
165
munaðarvöru, dýrari og óhaganlegri fatnaði, húsum,
húsgögnum o. fl.
En eyði A. sem svarar einni krónu á mann á dag
handa 10 mönnum um fiam B., þá gerir það á einu ári
3650 kr., en í 40 ár 146000 kr. auk vaxta.
Um svona eyðslu er þó lítið að tala hér á landi,
því að efnin þrjóta þá vanalega fljótlega, og við tekur
örbirgð eða náð annara manna.
Með 5% ársvöxtum tvöfaldast allar upphæðir á
hverjum 20 árum, en þegar vextir eru lagðir við þannig,
að reikna megi vexti af öllum vöxtum og vaxtavöxt-
um, þá tvöfaldast þær á rúmum 14 árum.
Að sínu leyti er útkoman með efnin lík eyðslunni,
ef við sýnum tómlæti í því að nota stundir og tækifæri
t.il þess að búa okkur í haginn, eða ef við vinnum ó-
haganlega vinnu eða t.ryggjum efnin of illa.
Ef B. eyðir ekki, og innvinnur sér að auki jafn-
mikla upphæð og A. eyðir, þá gengur allur mismunur
efnanna með tvöfalt meiri hraða en dæmið sýnir.
Hagsýnin er viðkvæm. í öllum greinum þarf á
henni að halda með nákvæmri athugun, viljakrafti og
staðfestu.
Hagfræðin getur bent mönnum á eymdaveg eyðslu-
seminnar og hamingjustig hagsýninnar. Hún getur vísað
þeim, sem rækt leggja við hana, veginn til efnalegs
sjalfstæðis og velliðunar.
En þá má sizt gleyma því, að sýna viðskiftafólkinu
sanngirni og búpeningnum nærgætni.
Því miður heflr það átt sér stað, að þeir, sem
komist hafa í efni fyrir mikla umhugsun og ástundun,
hafa orðið skaðlega eigingjarnir og ósanngjarnir við aðra.
Þeir safna auði á annara kostnað, sér og þjóðinni til
mikillar óhamingju, svo að menn hafa réttilega fordæmt
þesskonar auðsöfn. Aðferð þeirra hefir svo leitt til
þess, að margir hallmæla efnunum, en mæla fátæktinni
fremur bót. Mönnum hættir þvi við, að leggja ekki