Sunna - 01.10.1932, Blaðsíða 8
4
S U N N A
Mannflokkarnir.
I. Rauðir menn.
(Mennirnir, sem jörðina byggja, eru með ýmsum hörundslit. Sumir
eru gulir, rauðir, bláir, brúnir, svartir eða hvítir. Eg ætla smátt og smátt
að segja ykkur frá lífi kynstofn-
anna. Myndir munu fylgja. Vona
ég, að þið athugið leiðbeiningarnar
og búið til ýmsa hluti eftir myndun-
um, ykkur til fróðleiks og ánægju.
Eg veit, að þið finnið gleði í slíku
námi).
Rauðu mennirnir eru kall-
aðir Indíánar eða Rauðskinnar.
Þið hafið, mörg ykkar, séð
myndir af Indíánum og heyrt
einhverjar sögur af þeim. Þið
munið, ef til vill, bezt eftir
fjaðraskrautinu eða sögunum
um dansinn kringum bálin. Eg
ætla nú að segja ykkur frá
ýmsu fleiru úr lífi þeirra. —
Landið þeirra heitir Ameríka eða Vesturheimur. Það er land-
ið, sem Leifur heppni fann árið 1000 og kallaði Vínland hið
góða. Félagar Leifs höfðu fundið þar vínvið með vínberjum
á. Gaf hann landinu nafn af þessu.
Nokkru seinna gleymdist þetta stóra og auðuga Iand, og
enginn hvítur maður kom þangað öldum saman, svo að sögur
fari af.
Loksins skeði það, nærri 500 árum síðar (1492), að ítalskur
maður, Kristófer Kolumbus að nafni, fann aftur land þetta,
sem síðar var nefnt Ameríka.
Kolumbus hafði ætlað sér að fara til Indlands. Höfðu
margir sjógarpar reynt að sigla þangað. Ferðir voru