Sunna - 01.10.1932, Page 36

Sunna - 01.10.1932, Page 36
32 S U N N A hafi gefið út fjölritað blað. Öll eru þessi blöð hin myndar- legustu og mjög skemmtileg aflestrar. Nú vill Sunna mælast til þess, að henni séu send þau fjölrituð blöð, sem börn á skólaaldri gefa út hér á landi. V7ill hún gjarnan geta þeirra með nokkrum orðum. I næsta hefti Sunnu verða leiðbeiningar um blaðaútgáfu skólabarna. Verðlaun. Sunna mun af og til stofna til verðlaunaþrauta fyrir lesendur sína að glíma við. Verðlaun fyrir úrlausnir verða aðeins veitt börnum á skólaaldri, en alls ekki fulltíða fólki. Þegarúrlausnireru sendar, skal jafnan getið nafns höfundar, utanáskriftar, aldurs og í hvaða skóla hann er. Hér koma tvær fyrstu verðlaunaþrautirnar. /. verðlaunaþraut. Semjið sjónleik um einhvern atburð úr sögu íslendinga fyrir 1262. Aðalpersónur Ieiksins verða að vera sannar, en búa má til aukapersónur. Hæfileg lengd leikritsins er 2—4 bls. í Sunnu. Þrenn verðlaun verða veitt. 2. verð/aunaþraut. Svarið í ritgerð spurningunni: Hvernig á skóli að vera, til þess að börnunum þyki vænt um hann? Þrjár beztu ritgerðirnar verða verðlaunaðar. Úrlausnir beggja þrautanna eiga að vera komnar ritstjórum í hendur fyrir jól. Nöfn þeirra, sem verðlaun hljóta, verða birt í Sunnu, og svo beztu úrlausnirnar. SKILABOÐ: Báðav teihningarnar á forsíöu þessa heftis eru eftir Sverri Bergsson, 14 ára dreng í Reykjavík. Fræðslumálastjórinn ætlar aÖ láta Sunnu í té fjölbreyttar þrautir og heilabrot, handa lesöndunum aÖ glíma við. Þær fyrstu birtast í næsta hefti. Skólabörn og kennarar eru vinsamlega beöin að skrifa Sunnu og senda henni efni til birtingar. Sunna kemur út mánaðarlega að vefrinum, 6 hefti á ári, 32 bls. hvert. Árgangurinn kostar kr. 2,00 og greiðist fyrirfram. 50 aura heftið í lausasölu. Ritstjórar: Aðalsteinn Sigmundsson og Gunnar M. Magnússon. Utanáskrift: Pósthólf 406, Reykjavík. RíUisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Sunna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunna
https://timarit.is/publication/612

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.