Sunna - 01.10.1932, Síða 22
18
S U N N A
búsáhöld, tunnur, brúsa, hverfisteina, árabáta og gufuskip,
flugvélar og Zeppelin greifa, perlufestar o. fl. o. fl.
Börnin áttu venjulega sjálf hugmyndirnar að því, sem þau
mótuðu. Þau fengu, hvert um sig, dálítinn köggul í einu. Þegar
þau voru búin að móta einhvern hlut, var hann geymdur og lát-
inn þorna. Síðan vatnslituðu þau hlutina eftir smekkvísi sinni
og gerðu þá fallega, t. d. skófu með hníf þar sem óslétt var.
Gaman þótti börnunum seinasta skóladaginn fyrir jólin að
Iáta kertin sín standa á borðinu sínu í kertastjökum, sem þau
höfðu búið til úr leirnum og málað
alla vega.
í þessu hefti er frásögn eftir
dreng um það, hvernig megi búa
til perlufesti úr leir og nota til
skrauts.
Leirmótun er mjög hentug og
ákjósanleg í sambandi við ýmiskonar
nám.
Nú er ekki víst, að þið eigið kost á
því að fá olíuleir eða leir frá Guðm.
Kertastjaki úr leir. Einarssyni. En samt getið þið, ef til
vill, bjargað ykkur á þessu sviði. — Þið
ættuð við fyrsta tækifæri, að athuga nágrenni ykkar og
vita hvort þið finnið ekki Ieir, sem hægt er að hnoða. Eg
bvst við, að þið munið finna nothæfan leir t. d. við lækjar-
farvegi eða árbakka, og þó að hann sé ekki hreinsaður full-
komlega, munuð þið finna, að hann getur orðið ykkur til
gagns og yndis.
»Sunnu« þætti gaman að fá línur frá ykkur, ef þið gætuð
sagt henni, að þið hefðuð fundið góðan leir í nágrenni ykkar
og notað hann.
Þetta getur haft þýðingu fyrir framtíðina. G. M. M.
Perlufesti úr leir.
Það er vel hægt að gera perlufesti úr leir. Ef leirinn er
harður, þá þarf að láta hann í blauta tusku í einn dag eða