Sunna - 01.12.1932, Side 21

Sunna - 01.12.1932, Side 21
S U N N A 85 Samtal. Sveirm. Af hverju klifrar þú yfir girðinguna? Bjarni. Af því það er styttra. S. Þú veizt þó, að það er bannað. B. Veit ég víst, en ég er á móti öllum bönnum. S. Það er þó nauðsynlegt að banna. B. Jæja, en ég geri það helzt, sem mér er bannað. S. Þá ert þú ekki góður drengur. B. Nei, sérðu hann Jón þarna með sleikjuna? Oft er nú búið að banna honum að sjúga þær. S. Jón, af hverju ertu með sleikju þessa? Manstu ekki, að þér hefir verið bannað að kaupa sleikjur? Jón. Eg keypti ekki þessa sleikju. B. Hnuplaðir þú henni? J. Nei, ég fann hana. S. Hvar fannstu hana? J. Ég fann hana hérna í rennunni. Það hefir einhver týnt henni. B. Nei, og það stendur á henni Dísa, í - hí - hí! S. Fannstu hana í rennunni? J. Já, víst fann ég hana þar. S. Og þú sleiktir sleikju hérna upp úr rennunni! B. Já, og hann Fúsi sleikti hana líka. S. Þið eruð ljótu sóðarnir. J. Við þurrkuðum af henni. B. Með hverju? J. Við þurrkuðum af henni á brókum okkar. B. Og sóðarnir! S. Sjáið hann Gísla, strákar. Hvað er að honum? Gísli. Jalpi þi me! B. Hvers vegna lætur þú svona, drengur? Árni. Það stendar í honum stauturinn!

x

Sunna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunna
https://timarit.is/publication/612

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.