Sunna - 01.12.1932, Page 23
S U N N A
87
Þ. Nei, alls ekki. Það verða miklu fleiri að hugsa um
þetta og stelpurnar líka. Þessu máli verður að fresta.
Benni. Eg hefi margar uppástungur. Við höfum margir
hugsað um þetta.
A. Lát oss heyra.
Benni. Hleypihjól, töfrakefli, rennisnælda, rennihjól og
skólaplága.
S. Nei, sjáðu, Bjarni. Þetta er Ijóti leikurinn.
Grímur. Hvaða leikur?
S. Þessi, að berjast svona með mögunum.
Karl. Þetta er oss kennt í kvikmyndahúsunum. Þar er nú
ljótt að sjá og gaman að horfa á.
S. Ýmislegt er nú fallegt, sem þar er sýnt.
K. Jú, en það er mest gaman að því, sem sögulegt er.
S. Hvað kallarðu sögulegt?
K. Þegar strákunum tekst að Ieika á fullorna fólkið og
þegar þeim heppnast strákapörin.
S. Góðir drengir vilja ekki sjá það, sem ljótt er.
K. Það er nú ekki mikið gaman að vera með þessum
góðu drengjum.
S. ]æja, þykir þér meira gaman að vera með drengjum
eins og honum Tóka, sem farið var með niður á lögreglu-
stöð um daginn og sakaður um margt ljótt.
K. ]á, miklu meira gaman. Og ég var oft með honum Tóka.
S. Tókstu ekki eftir því, að hann var vondur strákur?
K. Nei, hann er alls ekki vondur. En hann er sniðugur
að herma eftir fullorðna fólkinu.
S. Heldur þú að fullorðið fólk geri það, sem hann Tóki
gerði?
K. Eg held nú ekkert um það. Eg sat oft með honum í
kvikmyndahúsum og horfði á margt með honum.
S. Hvað horfðuð þið á, til dæmis að taka?
K. Við Tóki! Það var nú nokkuð margt.
S. ]á jæja, nefndu eitthvað sérstakt.
K. Ekki held ég að ég geti verið að því.
S. Þá eru þetta öfgar eða það er mont.