Melkorka - 01.05.1946, Síða 13
og nýskeð lokið meistaraprófi. Hún
mun taka að sér kennslu við námskeið
þessi og veita þeim forstöðu.
Laun þeirra kvenna, er starfað hafa
við áðurnefndar stofnanir, hafa verið
mjög bágborin, en launalögin nýju
hafa þó þegar haft áhrif í þá átt, að
hækka laun þeirra, er veita heimilun-
um forstöðu og vitanlega verður að
greiða vel menntuðu starfsfólki hærri
laun en því hlaupafólki, sem stundum
hefur starfað við jressar stofnanir.
Með stofnun slíkra námskeiða er í
bráðina bætt úr brýnni þörf, því að
nú horfir til vandræða um hæft starfs-
fólk við þá leikskóla, er nauðsyn bæri
að komið væri á fót hið bráðasta. í framtíð-
inni mun þó eðlilegast, að fræðsla fari að
mestu leyti frarn við Kennaraskólann og
mun vera gert ráð fyrir því í frumvörpum
þeini um skólamál, er nú liggja fyrir Al-
þingi. Laun þessara kvenna verða því áreið-
anlega miðuð við Iaun annarra kennara.
Melkorka hvetur unga lesendur sína, er
unun hafa af börnum og kunna að um-
gangast börn, að atliuga hvort þarna er ekki
menntun og starf, sem jreirn hæfir. Ungu
Frd Tjarnarborg
stúlkurnar eru ennþá alltof ragar við að
reyna að afla sér menntunar til undirbún-
ings einhvers ákveðins starfs, og í eyrum
þeirra klingir alltaf sama viðkvæðið: „Það
er ekki til neins, því j)ii giftist, góða mín.“
Starf Jrað er hér um ræðir, er eitt hinna
fáu starfa utan heimilisstarfa, sem jafnvel í
augum hinna ströngustu „kvenlegleika“-
manna hlýtur að vera skapað fyrir konur.
Og jafnvel „Jjó Jrú giftist, góða mín“ er
menntun sii, er hér um ræðir, hin ágætasta
undirstaða hjónabands og barnauppeldis.
til
AÐ LEIKSLOKUM
Eftir Aðalbjörgu SigurÖardóttur
Fullir 7 mánuðir eru nú liðnir síðan
kallað var að hinni ægilegu heimsstyrjöld
undanfarinna ára væri lokið. í fyrstu gleði-
vímunni yfir langþráðum friði munu flestir
hafa viljað trúa ])ví, að nú yrði allt kapp á
Jjað lagt að vinna lriðinn, sem kallað var,
með öðrum orðum, byggja hinn nýja heim
svo upp, að styrjaldir yrðu ekki á endanum
eina hugsanlega lausnin á vandamálunum.
Nú, eftir Jæssa 7 mánuði er Jrað víst engin
goðgá lengur að efast um, að Jretta ætli að
takast, að minnsta kosti full ástæða fyrir
hvern og einn að reyna að gera sér ljóst,
livar hann vill leggja lóð á vogarskálina í
þeim átökum, sem framundan eru um allan
heim.
Við, sem erum svo gömul að við munum
fyrri heimsstyrjöld með öllum Jreim hörm-
MELKORKA
9