Melkorka - 01.05.1946, Qupperneq 14
Vor um alla veröld
ungum, sem henni fylgdu ættum að hafa
nokkuð lært, bæði af styrjöldinni sjálfri og
árunum næstu á eftir. Við ættum t. d. að
muna það, að það var bjargföst trú bjart-
sýnna mannvina, að þetta hlyti að verða
síðasta styrjöldin, mannkynið legði aldrei
vitandi vits út í annað eins glapræði aftur,
ólýsanlegar hörmungar, sem enginn hefði á
endanum gagn af. Þessi dýrkeypta reynsla
hlyti að verða nægur lærdómur. Hvernig
fór? Naumast var þessi fyrri heimsstyrjöld
á enda, þegar farið var að leggja grunninn
að þeirri næstu, og það svo opinskátt að hver
meðalgreindur maður hlaut að sjá hvert
stefndi. Má þá nærri geta hvort stjórnend-
ur og ráðamenn þjóðanna hafa verið eins
blindir og þeir þóttust stundum vera.
Það þurfti ekki nema 21 ár til þess að
steypa heiminum út í nýja styrjöld, þeim
mun ægilegri en þá fyrri, að vegna loft-
árásanna urðu skelfingarnar nú hvað mest-
ar heima fyrir, en ekki á vígvöllunum. Þján-
ingar þessara stríðsára um allan heim eru svo
dæmalausar, að bráður bani verður barna-
leikur einn og eftirsóknarvert linoss, og er þó
lífselskan öllum í blóðið borin. Það er því
ekki svo undarlegt, þó enn hafi það hvarflað
að mörgum, að nú hljóti bikarinn að vera
fullur, út í svona brjálsemi leggi heimurinn
ekki oftar, ekki sízt eftir uppfyndingu kjarn-
orkusprengjunnar. Eg verð að játa, að ég
er ein af þeim vantrúuðu, mér sýnast menn-
irnir ekkert hafa breytzt eða þjóðfélögin
batnað síðan eftir fyrri heimsstyrjöld, og
lield því að tími sé til þess kominn að al-
menningur geri sér Ijóst, um livað er barizt,
ef ekki á að stefna veraldarfleyinu í beina
gereyðingu.
í einni af bókum ameríska skáldsins
Thomas Wolfe lýsir hann ástandinu á þess-
ari jörð árið 1934 á þessa leið: „Japan býr
sig undir stríð við Kína innan tveggja ára,
Rússland mun fylgja Kína að málurn, Japan
gerir bandalag við Þýzkaland, Þýzkaland
semur við Ítalíu og segir síðan Frakklandi
og Englandi stríð á hendur, Ameríka reynir
að stinga liöfðinu í sandinn og halda sér
utan við stríðið, en það tekst ekki, og hún
dregst með. Þegar svo að lokum allt mann-
kyn hefur barizt fram og aftur um allan
hnöttinn, þá mun að síðustu hinn kapítal-
istiski heimur sameinast í lokaárás á Rúss-
land, til þess að reyna að uppræta hið
kommúnistiska skipulag?
Margt bendir til þess nú, að þessi skarp-
legi spádómur ameríska skáldsins ætli að
rætast til enda, en það er þó ekki þess vegna,
sem ég hef tekið hér upp þessa tilvitnun,
heldur vegna hins, að seinasta setningin
bregður skýru Ijósi yfir það, hvers vegna
ekki er hægt að fá í'rið á þessari jörð, hvaða
öfl það eru, sem munu berjast allt þar til
yfir lýkur og annað hvort tekur við alger
tortíming eða að réttur hinna mörgu verð-
ur viðurkenndur.
Við skulum ekki láta okkur detta í hug,
að hinn kapítalistiski heimur sé Ameríka
10
MELKORKA