Melkorka - 01.12.1949, Blaðsíða 4
mörgum íjölskyldum með lágar tekjur veitt-
ur húsaleigustyrkur. Allt Jretta miðar að
því að veita almenningi stærri og betri húsa-
kynni. 'Að því er Al£ Johansson, formaður
byggingarstofnunar ríkisins, segir er nú eft-
ir stríðið byggt hér meira en nokkru sinni
fyrr, meira en í nokkru öðru landi miðað
við íbúatölu og meðaltal gólfflatar í íbúð-
um þeim sem byggðar hafa verið eftir 1944
er 30% stærri en áður. Einnig segir hann:
„Til þess að greiða húsaleigu fyrir þriggja
herbergja nýtízku íbúð — sem þó er ennþá
of há — fer nú um það bil jafnmikill hluti
al meðaltekjum verkamanns, sem þurfti til
að greiða liúsaleigu fyrir einsherbergisíbúð
fyrir fimmtán árum síðan.“ Þrátt fyrir allt
þetta eru hér ennþá húsnæðisvandræði og
húsaleiguokur kemur hér fyrir sérstaklega
á einbýlisherbergjum.
Skipulag bœjarhverfa og sameiginleg pceg-
indi.
Hér er nú mest byggt af þriggja liæða
fjölbýlishúsum. í hverju nýbyggðu hverfi
er séð fyrir verzlunarmiðstöðvum, sem
venjulega eru tilbúnar um leið og flutt er.í
húsin. Liggja þá ætíð kjöt-, mjólkur-,
brauð-, fisk- og nýlenduvörubúðir hlið við
hlið; póststofa og lítil vefnaðarvöruverzlun
eru venjulega ekki heldur langt frá. Milli
húsannaerutalsvertstórir grasfletir og sand-
kassar fyrir börnin og eitthvað af trjám og
runnum. En svo skiptir nokkuð í tvö horn
eftir því, hvort það eru byggingarfélög al-
mennings eða einkafyrirtæki sem byggja. 1
liúsinu þar sem ég bý, sem byggt er af
einkafyrirtæki, er sameiginlegt þvottaluis.
Þar er þvottavél, sem hægt er að sjóða í,
þurrkskilvinda, þurrkklefi og rafknúin köld
rulla. Þvottahús þetta er notað af 25 fjöl-
skyldum, og verð ég aldrei vör við árekstra.
Þetta mun vera algengasta fyrirkomulagið
hér að því er þvottunum við kemur. En í
sumum þeim hverfum sem reist eru af al-
mennum byggingafyrirtækjum er byggð ein
stór þvottamiðstöð í hverfinu, og verður þá
þvottahúsið ennþá fullkomnara og fljót-
virkara. í mörgum slíkum hverfum er einn-
ig fyrr og betur séð fyrir leikskólum, leik-
völlum og húsnæði til tómstundaiðkana.
Fyrir rúmu ári síðan var hér skipuð nefnd,
sem á að gera tillögur um sameiginleg þæg-
indi í leiguhúsum og nýbyggðum hverfum.
Verður fróðlegt að vita, að hvaða niður-
stöðum hún kemst. í henni eiga nokkrar
konur sæti.
íbúðir og húsgögn.
Urn skipulagningu íbúðanna er varla
nokkuð nýtt að segja annað en að eldhúsin
liafa stækkað, og er nú að mestu leyti farið
eftir innréttingu þeirri sem frá var sagt í'
Melkorku 1945. Sama er að segja um skápa.
Húsgögnin eru í sama Ijósa, létta og þægi-
lega stílnum og áður, í þetta sinn ber þó
töluvert á óþarfa íburði og „krusidullum",
en það eru líka húsgagnaverzlanir sem sýna
þarna í auglýsingaskyni. Útbúnað einnar
íbúðarinnar höfðu nokkrir ungir listamenn
annazt á ábyrgð sýningarnefndar. Sú íbúð
í sínum fátæklega baðstofulega einfaldleik
hefur hér lmeykslað marga. Eina verulega
nýjungin þarna á sviði húsgagna var hinn
svonefndi Ákerblomsstóll, sem kenndur er
við upphafsmann sinn, Bengt Ákerblom
lækni í Ujrpsölum. Lágur sess er löngum
76
MEI.KORKA