Melkorka - 01.12.1949, Blaðsíða 8

Melkorka - 01.12.1949, Blaðsíða 8
Kristin L. Sigurðardóttir fyrir Sjálfstccðisflokkinn Rannvéig Þorsteinsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn riðum mannréttinda, á sröfín og eildi 7 o o o o mannsins og jafnrétti karla og kvenna.“ „Ber og hverjum einum aðstuðlaaðþeim framförum, innan ríkis og ríkja í milli, er að markmiðum yfirlýsingarinnar stefna, tryggja almenna og virka viður- kenningu á grundvallaratriðum hennar og sjá um, að þau verði í heiðri höfð . . .“ „Hver niaður skal eiga kröfu á réttind- um þeim og því frjálsræði, sem fólgin eru í yfirlýsingu þessari, og skal þar engan greinarmun gera vegna kynþátta, litar- háttar, kynferðis, tungu, trúar, stjórn- málaskoðana eða annarra skoðana, þjóð- ernis, stéttar, eigna, ætternis eða annarra aðstæðna.” „Hverjum manni ber sama greiðsla fyrir sama verk án manngreiningarálits." „Mæður og börn skulu njóta sérstakrar verndar." „Hverjum manni ber réttur til þjóðfé- lagshátta og alþjóðasamfélags, er virði og framkvæmi að fullu mannréttindi þau, sem í yfirlýsingu Jressari eru upp talin.“ Ofangreind atriði hefur Island samþykkt fyrir sitt leyti. í frv. sínu um réttindi kvenna höfðar Hannibal Valdimarsson til þessarar mannréttindayfirlýsingar. Alþingi hundsaði hvorttveggja, lrv. og yfirlýsinguna á seinasta þingi. Valdamenn okkar virðast líta á aðild okkar að Sameinuðu þjóðunum sem nokk- urs konar „cocktailparty", jiar sem fólk Jrvaðrar um allt milli himins og jarðar sem sé svo markleysa, þegar víman er runnin af. En hvað finnst okkur kvenfólkinu, sem teljum okkur hag í slíkum lagabókstaf (eða stjórnarskrárákvæði)? Er nóg að sendifull- trúar okkar á þingum Sameinuðu þjóðanna hafa sett upp hátíðarsvip? Við viðurkennum 80 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.