Melkorka - 01.12.1949, Blaðsíða 5
hægur, segir máltækið, enda hafa bílasæti,
flugvélasæti og hægindastólar lengi verið
gerðir eftir þessum gömlu sannindum. Og
nú hefur Ákerblom læknir í mörg ár rann-
sakað, hvernig menn þreytast minnst, er
þeir sitja og standa, um þetta hefur hann
síðan sarnið doktorsritgerð, hlotið nafnbót-
ina, og ætlar sér nú að fara að kenna fólki
að sitja og standa. Hann segir, að menn
eigi að sitja á sitjandanum, ekki lærunum,
að jrað eigi að miða Iiæð stólsins við lág-
vaxnasta fólkið þ. e. a. s. kvenfólkið, að
meðalhæð kvenna til hnésins sé 39—40 cm,
en karlmanna 5 cm meiri. En þar af leiði,
að Iiæð stólsetunnar frá gólfi eigi að vera
38—41 cm. Nú er venjulega hæð á borðstofu-
og vinnustólum 43—45 cm. Auk þess segir
hann að stólbakið verði að veita möguleika
til að minnsta kosti þriggja hvíldarstellinga:
menn eigi að geta setið ofurlítið álútir,
nokkurn veginn uppréttir með stuðningi
við mjóhrygginn, og í þriðja lagi liallað sér
lítið eitt aftur á bak og þá haft stuðning
fyrir allt bakið. Ég hef prófað þennan nýja
stól og linnst hanri sérstaklega þægilegur.
Heimilisvélar.
Hér í Svíþjóð er stefnt að því að leysa
þvottamálið aðallega með sameiginlegum
þvottahúsum en þarna var þó heilmikið safn
af alls konar minni þvottavélum. En heim-
ilisþvottavélar þær sem ekki er hægt að hita
í standast varla að verði til samanburð við
þær amerísku. En þarna var mjög álitleg
gerð af nokkuð stórri heimilisþvottavél frá
Husqvarna. í henni var hægt að þvo, sjóða
og vinda (með miðflóttaafli). Sú var þó ekki
gefin: 2700 krónur sænskar. Sama firma
sýndi einnig nýja uppjrvottavél á 900 krón-
ur. Husqvarna framleiðir nú einnig raf-
knúna litla saumavél, og er hún hér álitin
fullkomnari en Elnavélin svissneska. Vél
jressi er með Zig/.ag spori (verð 690 krónur).
Samband samvinnufélaganna auglýsir nú
nýja saumavél, sem kemur á markaðinn eftir
nýjár; í útliti er hún lík Husqvarnavélinni,
en frábrugðin henni að því leyti að Zigzag
sporið vantar (verð 450 krónur). Ný gerð af
Elektrolux-kæliskáp með hólfi fyrir hrað-
frystar vörúr og Elektrolux-hrærivélin með
nokkurri endurbót (litlum aukajreytara) var
hvorttveggja í „eldhúsi dagsins og morgun-
dagsins". Einnig má nefna eldhúsvélina
Turnix, sem er víst af svissneskum uppruna,
en hún rífur og saxar allt grænmeti á auga-
bragði og hrærir auk jress majones o. fl.
Einhvers konar sameining af henni og
Elektrolux-hrærivélinni gæti orðið eldhús-
vélin „sem gerir allt“. Turnixvélin væri
geysilegt júiig fyrir náttúrulækningamenn
og aðrar grænmetisætur.
Ýmislegt smávegis
Á einum stað var eldhús „allt úr plasti“.
Þar voru skálar, diskar og bollar úr plasti,
plast á eldhúsborði,j)ó ekki uppþvottaborði,
plastdúkur í hillurn og skúffum og mjög
fallegur, þrykktur hördúkur með plasthúð
á matborðinu. Af honum mátti þurrka eins
og af vaxdúk. Stólarnir voru einnig klæddir
með nýrri tegund af plastdúk, svonefndu
„galon“. Galon er meðal annars farið að
nota hér mikið í utanyfirbuxur á börn. Slík-
ar buxur eru hin mestu þarfajring og þarf
ekki annað en skola af krökkunum með
handsteypunni í baðkerinu eða jmrrka með
votri rýju, jiegar ]jau korna úr sandhaugum
og forarpollum. Slíkar buxur myndu vera
gullsígildi í Reykjavík engu síður en í
Gautaborg.
Krydd- og eggjahillur úr lakkeruðum létt-
málmi ætlaðar til að festa innan á skáp-
hurðir, eru litlir, einfaldir og ódýrir hlutir
til mikilla þæginda. Vel leizt mér einnig á
fatahengi, þar sem herðatrén renna á hnúð
innan í málmstöng, en jpessi útbúnaður
MEI.KORICA
77