Melkorka - 01.11.1955, Page 25

Melkorka - 01.11.1955, Page 25
Mágkona mín er mjög góð og frjálslynd. Hjónaband þeirra er líka ástúðlegt. Þó geðj- ast mömmu ekki að henni. Nú fannst lienni bróðir minn ekki nógu nærgætinn og ástúð- legur — fannst hann taka konu sína fram yfir hana. Á hverju kvöldi varð hann að sitja hjá mömmu fram eftir öllu og rnasa við liana. Alltaf þegar hún heyrði ungu hjónin vera að tala saman í herbergi sínu eða hlæja varð hún fokvond. Loksins missti bróðir minn þolinmæðina, og þan fluttu burt af heimilinu. Eftir þetta meðhöndlaði hún mig ein- strengingslegar en áður. Hún leyfði mér ekki lengur að taka |oátt í fundum, né nám- skeiðum. Nokkrum sinnum reiddist hún svo, að hún lá þrjá daga í rúminu án þess að tala nokkurt orð. Ég kappkostaði að milda hug liennar. Ég eldaði matinn, bar henni hann í rúmið og reyndi að fá hana til að borða. Daginn eftir atburðinn í rigningunni fór ég aftur til þess að vinna úti á akrinum. Ég varð Jaess vör að mamma veitti mér eftirför, en lézt ekki taka eftir því. Þegar ég fór fram hjá Feng-Kvej stakk ég að honum miða með Jressari áletrun: Feng-Kvej, ég hef nú tekið ákvörðun um að bjóða öllum erfiðleikum byrginn. En hvert er áform þitt? Gerðu svo vel að svara. Næsta morgun vorn svefnherbergisdymar mínar lokaðar. Ég tók það ráð að fara að syngja, og ég söng allt sem ég kunni. Ég bragðaði hvorki vott né þurrt þótt mamma færði mér mat inn um gluggann. Þrír dagar liðu. Forseti Kvenfélagsins heimsótti mömmu. Ég heyrði livað þeim fór á milli. Hún sagði mömmu að vinnuaðferð- ir gamla lénsskipulagsins væru nú orðnar úreltar og ójrarfar. Svo sagði hún henni um nýju hjónabandslögin og rétt æskufólksins til þess að velja sér lífsförunaut. Loksins lét mamma undan og opnaði fyr- ir mér. Ég borðaði eitthvað og fór út á akur- inn. Feng-Kvej hafði lokið dagsverkinu og beið eftir mér. Ég hef nú beðið eftir Jrér í Jrrjá daga, sagði hann, um leið og hann rétti nrér svarbréf sitt, svohljóðandi: Sjá-jún, ég hef nú einnig tekið mínar ákvarðanir. Ég hef lengi rætt við fjölskyldu mína og fengið samjrykki að lokum. Ég vona að þér takist einnig að telja 1jölskyldu þinni hughvarf. Ég gaf honum höfuðklútinn, sem ég keypti fyrir nokkrum dögum. Þegar ég kom aftur heim var mamma grátandi. Eftir að bróðir minn flutti að lieiman liafði hún ákveðið að gifta mig ein- hverjum sem vildi koma og búa í húsi okk ar eins og sonur hennar. Hún sagði: Hvem- ig á ég að geta lifað ef lífsdraumur minn er að engu gerður? Hún gi'ét svo beisklega að ég gat ekki annað en grátið líka og faðmaði hana að mér. Þrír mánuðir liðu án Jiess ég sæi Feng-Kvej aftur. í janúar var haldin kaupstefna í Lungvan- þorpi. Mamma fór með mér. Við reikuðum á milli skálanna og ég keypti mér minnis- bók. Mamma leit á þetta sem eyðslusemi, þar sem minnisbókin mín sem ég átti heima var enn ekki útskrifuð. Við komum nú að tjaldi með áletruninni: Upplýsingastöð fyrir hjónabandslögin nýju. Mér datt í hug að hérna væri rétta lyfið handa mömmu. Hér er eftirtektarverð sýn- ing, sagði ég og leiddi hana inn. Þarnavoru til sýnis sögulegar myndir, með nánari skýringatextum við hverja mynd. Þar var einnig fólk sem sagði sögur og söng sögu- ljóð. Tjaldið var fullt af fólki. Við skoðuð- um myndasamstæður um barnahjónabönd og ég las mömmu skýringarnar. Hún lét andúð sína í ljós með snúðugum svip, en hlustaði Jró með athygli. Svo hlustuðum við á mann senr sagði smásögur, að því búnu fórum við að sjá sjónleik. Það er áreiðanlega Jrinn dagur í dag. Alls- staðar eru menn að tala um frelsi, sagði mamma alvarleg á svip, því frelsi er mikil- vægt málefni. Nú held ég að Jrér líki, sagði hún, en hélt Jró athygli sinni vakandi. Undir einhverju yfirskyni yfirgaf ég MELKORKA 89

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.