Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 10
Uhans.
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals 2010 með framkvœmdastjóra. Sitjandifrá
vinstri: Sveinn Stefánsson fortnaöur handknattleiksdeildar, Hörður Gunnarsson.for-
maður og Hafrún Kristjánsdóttir. Standandi frá vinstri: Friðjón R. Friðjónssonfor-
maður knattspyrnudeildar, Hjörtur Fr. Vigfússon, framkvœmdastjóri og Haraldur Daði
Ragnarsson. Á myndina vantar: Eggert Þ. Kristófersson og Lárus Blöndal formann
körfuknattleiksdeildar.
Starfið er margt
Á árinu störfuðu Fálkarnir sem er stuðn-
ingsfélag foreldra við yngriflokkastarfið
af miklum krafti. Segja má að stofnun
þessa félags sé mikill hvalreki fyrir Val
og sýni enn og aftur að það eru margir
tilbúnir til að gefa af tíma sínum í vinnu
fyrir félagið. Megintilgangur félagsins er
að styðja við starfsemi yngri flokka
félagsins auk þess að stuðla að framgangi
Vals þar sem þeir koma stuðningi við.
Þeir fá þakkir fyrir ómetanlegan stuðning
við starf Vals.
Á árinu var unnið gott og gefandi starf
með börnum og unglingum. Vert er að
taka fram að Valur tók upp fyrst félaga
að sækja yngstu iðkenduma og koma
Afmælisár fer í hönd
Eins og allir vita fer nú í hönd afmælisár
í tilefni af 100 ára afmæli Vals. Allt þetta
ár hefur afmælisnefnd félagsins unnið að
gerð metnaðarfullrar dagskrár sem boðið
verður upp á á afmælisárinu. Ég vil
hvetja félagsmenn til að fylgjast með
dagskránni sem gefin verður út í árslok
og kynnt sérstaklega á heimasíðunni. Ég
hvet alla Valsmenn til virkrar þátttöku í
þeim fjölmörgu viðburðum sem í boði
verða.
Á næsta ári kemur út glæsileg bók
sem inniheldur sögu Vals í 100 ár.
Þorgrímur Þráinsson hefur unnið að
ritun bókarinnar ásamt öflun mynd-
efnis og notið til þess stuðnings rit-
nefndar en hana skipa Þorsteinn Har-
aldsson, Hanna Katrín Friðriksson og
Guðni Olgeirsson.
Minjanefnd Vals var endurvakin á
árinu enda fjölmörg verkefni sem hennar
bíða svo gera megi sögu félagsins sem
best skil. Nefndin vinnur nú m.a. að söfn-
un og flokkun muna en á afmælisárinu
verður minjasafni félagsins fundinn
aðgengilegur staður að Hlíðarenda. Þó
nokkuð af munum sem tengjast sögu
félagsins hefur borist frá félagstnönnum
eða afkomendum genginna félaga. Þess-
ar góðu gjafir eru ómetanleg viðbót við
það safn minjagripa sem fyrir er. For-
maður Minjanefndar Vals er Magnús
Ólafsson en aðrir nefndarmenn eru Agúst
Harðarson, Kristján Ásgeirsson, Margét
Ragnarsdóttir, Nikulás Úlfar Másson,
Ólafur Már Sigurðsson, Ragnar Ragnars-
son, Þórarinn Valgeirsson og Ægir Ferd-
inandsson. Að auki hefur nefndin notið
stuðnings Atla Sigþórssonar sagnfræð-
. vii • •' •
Sigurvegarar 3.flokks kvenna íknattspyrnu á
Dana Cup, stóru og sterku móti íDanmörku.
Ferð fulltrúaráðs á Akranes. Neðri röð frá
vinstri: Gunnar Kristjánsson, Ingvar
Elíasson, Bjarni Bjurnason, Sigurður
Haraldsson, Nikulás Úlfar Másson, Pétur
Carlsson og Lúkas Kárason (tengdapahhi
HH). Efri röð frá vinstri: Jón G. Zoega,
Friðjón Friðjónsson, Róbert Jónsson, Þor-
steinn Sívertsen, Sigurður Jónsson, Jóhann
Albertsson, Halldór Einarsson, Hörður
Hilmarsson, Elías Hergeirsson, Magnús
Ólafsson og Lárus Loftsson. Á myndina
vantar Kristján Ásgeirsson sem bœttist í
hópinn á Akranesi.
Feðgarnir Þorgrímur Þráinsson og
Þorlákur Helgi, 10 ára, stóðu sig
afar vel í getraunaleik Vals á árinu.
10
Valsblaðið 2010