Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 104
Valsblaðið 2010
auðvitað verið skemmtileg-
ast. Strákunum var m.a. boðið upp á
skoðunarferð um eyjarnar í rútu, síðan
var stórskemmtileg bátsferð sem vakti
stormandi lukku og enga sjóveiki. Síðan
skoðuðu drengimir „Pompei norðursins“
þar sem verið er að grafa upp hús sem
urðu vikri að bráð í gosinu 1973, en það
er áætlað að grafa upp 7-10 hús. Sumir
strákanna fengu að prófa þjóðaríþrótt
þeirra Eyjamanna, sprangið, og höfðu
mikið gaman af því að prófa sig áfram í
þeirri ágætu íþrótt. Síðan buðu Eyjamenn
upp á glæsilega kvöldvöku og fleira
skemmtilegt stóð strákunum til boða
þessa frábæm mótadaga.
Prúðmennskubikarinn að
Hlíðarenda
Valsmenn unnu að þessu sinni stærsta, og
að sumra mati, eftirsóttasta bikarinn,
prúðmennskubikarinn, sem var afhentur
því liði sem þótti bera af sakir prúð-
mennsku í leik og utan vallar. Það verður
að segjast að öll umgengni dr'engjanna
var til stakrar prýði meðan á mótinu stóð
og þeir höfðu greinilega kjörorðið „látið
aldrei kappið bera fegurðina ofurliði" að
leiðarljósi á meðan á mótinu stóð. Ann-
ars var frábært að sjá til drengjanna á
lokahófinu sem án efa ólu í brjósti sér þá
von að fá nú einhvern bikar til að fara
með heim og viti menn, stærsti og flott-
asti bikarinn féll þeim í skaut og þvílík
fagnaðarlæti sem brutust út meðal Vals-
drengja, einsog þeir hefðu unnið sjálfan
heimsmeistaratitilinn, slík var ánægjan.
Flugferðin heim var farin stuttu eftir
lokahófið og voru strákarnir allir sem
einn með bros sem náði allan hringinn
svo ánægðir voru þeir með þennan frá-
bæra bikar eftir aldeilis frábært mót.
Sannarlega mikill efniviður í frábæra
Valsmenn hér á ferð.
Það er rík ástæða fyrir unga Valsmenn
sem ekki hafa farið á Shellmót í Eyjum
að byrja að hlakka til þeirrar ferðar, ég
fullyrði að þessi skemmtilega ferð á eftir
að sitja í minningu þeirra sem fóru á
þetta mót langt fram á fullorðinsár.
Með VALS-kveðju og kæru þakklæti
til allra þeirra sem gerðu þessa ferð
mögulega.
Sigurður Hallmann Isleifsson,
liðs/fararstjóri á Shellmóti
sumarið 2010.
milli liðanna með tilheyrandi
spennu og ákafa drengjanna sem
tóku þátt og þeirra sem stóðu í
áhorfendastæðunum. í skrúðgöng-
unni slæddist með okkur mynda-
ikumaður frá Stöð2 sem tók mikið af
yndum af drengjunum sem voru allir
:m einn til í að láta ljós sitt skína fyrir
ikumanninn og birtust myndir af hers-
igunni í íþróttaþáttum stöðvarinnar.
Leikir liðanna fóru fram á áðurnefndum
völlum og var keppt eftir n.k. styrkleika-
flokkun fyrsta daginn og miðast mótið
við að ná að etja saman sem jöfnustum
liðum í úrslitum mótsins til að gefa öll-
um liðum sem jafnasta möguleika á að
ná árangri. Þessi aðferð hefur reynst
þeim Eyjamönnum vel og verður ekki
annað sagt en að hún hafi virkað vel. Öll-
um liðum Vals gekk vel þó að ekki hafi
þau náð að spila í úrslitaleikjum um bik-
arana 13 sem í boði eru á mótinu. Vals-
menn áttu fulltrúa í pressuliði mótsins og
var það Birgir Valur Birgisson sem hlaut
þann heiður. Á mótinu er venja að velja
landslið og pressulið úr liðum mótsins til
að spila sýningaleik sem landsliðið vann
að þessu sinni.
Ýmis skemmtileg atvik
Það yrði of langt mál að telja upp öll
þau bráðskemmtilegu atvik sem gerð-
ust á þessu móti hjá Valsliðinu en þó
verður að segja frá því þegar atvinnu-
knattspyrnumaðurinn og Eyjapeyinn
Hermann Hreiðarsson gekk inn á vall-
arsvæðið á Helgafellsvellinum og augu
allra 9-10 ára gutta á svæðinu mændu
á goðið eins og naut á nývirki. Ein
Valsmamman gekk til hans og spurði
hvort hann væri ekki til í að sitja
fyrir á mynd hjá Valsmönnum og
Hemmi var aldeilis til í það. Það
hefur aldrei verið auðhlaupið að
halda Hemma Hreiðars niðri en
eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd sést hvar honum er haldið
kyrfilega niðri af 10 ára gutta úr
VAL á meðan á myndatökunni
stendur. Það var auðvitað meira
skemmtilegt að gerast á þessu
móti en bara fótbolti, þó það hafi