Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 72
Stefnumótun
Meginþættir í nýrri
afrehsstefnu Vals
Að undanförnu hefur verið unnið að mót-
un afreksstefnu hjá Val sem þegar er far-
ið að vinna eftir, Eftirfarandi eru helstu
atriði í stefnunni.
Efnið er fengið frá afrekssviði Vals
Valur hefur það að markmiði að eiga
ávallt íþróttamenn í fremstu röð í knatt-
spyrnu, handknattleik og körfuknattleik.
Félagið býður upp á aðstöðu sem ýtir
undir áhuga ungmenna til að skara fram
úr og viðhalda fjölmennum hópi íþrótta-
manna. Með afreksstefnunni skapar Val-
ur grundvöll fyrir ungt og efnilegt
íþróttafólk til að ná hámarksárangri og
leggja rækt við sál og líkama.
Valur hefur traustan rekstrargrundvöll
og leggur sig fram um að bjóða upp á
skýra valkosti. Valsmenn eru hvattir til
að koma sem oftast að Hlíðarenda og
taka þátt í fjölbreyttu starfi þar sem inn-
viðir eru sterkir og vinnubrögð markviss.
Þjónustulund er ætíð höfð að leiðarljósi
og starfið byggir á skilvirku upplýsinga-
streymi og jákvæðum viðhorfum.
Markmið Vals er að bjóða keppnis-
og afreksmönnum upp á:
• metnaðargjarna og vel menntaða þjálf-
ara
• óaðfinnanlega æfinga- og keppnisað-
stöðu
• öflugan stuðning félags- og stjórnar-
manna
• góða aðhlynningu lækna, sjúkraþjálf-
ara, næringarfræðinga o.fl.
• einstaklingsmiðaða styrktarþjálfun
• kennslu í markmiðasetningu og eftir-
fylgni
Framúrskarandi íþróttauppeldi
Hlutverk Vals er að leitast við að
hámarka lífsgæði Valsmanna, auka vel-
Ifðan þeirra og tryggja árangur. Félagið
býður upp á framúrskarandi íþróttaupp-
eldi sem styrkir sjálfsmynd barna og ung-
menna og leiðir til heilbrigðara lífs. Val-
ur skapar afreksfólki bestu mögulegu for-
sendur til að þroska og þróa hæfileika
sína. Og félagið veitir Valsmönnum á öll-
um aldri tækifæri til að rækta tengsl við
félagið og aðra Valsmenn.
flbyngö - Metnaður - Lífsgleði -
Heilbrigði
Gildi Vals eru í meginatriðum fjögur auk
einkunnarorða félagsins:
Látið aldrei kappið bera fegurðina ofur-
liði.
Abyrgð
• sýnum ábyrgð við uppeldi ungmenna
• berum virðingu fyrir umhverfinu
• stýrum fjárhag af ábyrgð og festu
Metnaður
• Valur á öflugasta afreksfólk landsins
• aðstaðan ávallt til fyrirmyndar
• gæði þjónustu framúrskarandi
• heiðarleiki innan vallar sem utan
• Valsmenn fyrirmyndir í hvívetna
Heilbrigði
• Hlíðarendi alltaf án tóbaks
• reglusemi og heilbrigð lífsviðhorf
• þjálfarar fyrirmyndir'iðkenda í orðum
og athöfnum
• virðing gagnvart samherjum og mót-
herjum
Lífsgleði
• látum aldrei kappið bera fegurðina
ofurliði
• ánægðir starfsmenn
• njótum þess sem við gerum
• iðkendur og foreldrar himinlifandi
• Valsmenn á öllum aldri vilja taka þátt í
starfinu
Afreksstefna mcistaraflokka
• meistaraflokkar Vals eru ávallt í einu
af þremur efstu sætunum á íslandsmót-
um
• meistaraflokkarnir vinna sér keppnis-
rétt í Evrópukeppni að lágmarki annað
hvert ár
• á hverju ári eru einn til tveir leikmenn
seldir til erlendra liða
Framtíðarfólk Vals
Metnaðarfullur og faglegur vettvangur
fyrir framtíðar afreksfólk Vals í 2. aldurs-
flokki. Alhliða þjálfun sem grundvallast
á því; að greina styrkleika og veikleika
leikmanna, einstaklingsþjálfun, fyrirlestr-
um sérfræðinga, markmiðasetningu o.fl.
Með afreksstefnunni skapar Valur grund-
völl fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk sem
ætlar að ná einstökum árangri í íþrótt
sinni.
Arið 2011 á „Valsstefnan“ að vera við-
urkennd sem íþróttauppeldisstefna sem
laðar fram það besta í hverjum einstak-
lingi, hvort sem hann stefnir á hámarks-
afrek eða almenna þátttöku.
Valsblaðið 1963
SLEIV LEIKMANNA
Úr viðtali við Albert Guðmundsson
Eitt er líka athyglisvert í Val og raunar í flestum liðum hér, og það er að strax þegar
menn hafa komizt upp í meistaraflokk og líta á sig sem fasta menn þar, er eins og
eitthvert slen komi yfir þá, það er eins og þeir stöðvist á þroskabrautinni. Þetta er
alvarlegt mál fyrir þroska knattspyrnunnar hér. Þetta stafar ekkert af öðru en æfinga-
leysi og áhugaleysi og of mikilli sjálfsánægju með það að vera kominn í meistara-
flokk.
Hvemig er hægt að laga þetta?
Það er sjálfsagt erfitt en það þarf að breyta hugsanagangi þeirra sem velja lið, þar
þurfa að vera menn með mikla reynslu og mannlega þekkingu. Undantekningarlaust
á að velja í kapplið menn, sem hafa stundað erfiðisvinnu, menn sem eru harðir af
sér, bæði hvað skapgerð snertir og eins hvað líkamsbyggingu snertir.
Af tvennu jöfnu mundi ég taka harðan verkamann til keppni og æfinga en leikinn
skólapilt. Sá, sem ekki stundar erfiðisvinnu verður að leggja að sér mjög harða þjálf-
un, ef hann á að geta vegið upp á móti þeim sem daglega leggur að sér erfiðisvinnu.
72
Valsblaðið 2010