Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 86
R sparNord
Aðfaranótt 26. júlí 2010 lögðum við
stúlkurnar í 3. flokki kvenna í Val af stað
í keppnisferð sem við munum seint
gleyma. Það voru knattspyrnukonur í sig-
urvímu sem stigu upp í flugvél á leið til
Danmerkur. Þarna vorum við nýkrýndir
Rey Cup-meistarar, en það mót hafði
endað daginn áður. Spennan var mikil
því aldrei höfðum við farið áður saman
sem hópur í keppnisferð til útlanda. Þær
Elín Metta Jensen, Hildur Antonsdóttir,
Svava Rós Guðmundsdóttir og Ingunn
Haraldsdóttir höfðu verið í ferð með U17
landsliðinu í Færeyjum þessa helgi. Þær
hittu hópinn á flugvellinum í Billund þar
sem þvílíkir fagnaðarfundir áttu sér stað.
Eftir margra klukkustunda ferðalag kom-
um við loksins til Hjprring þar sem mót-
ið var haldið. Þar komum við okkur fyrir
í skóla sem var mjög vel staðsettur. Við
höfðum verið að burðast með dýnur með
okkur, en þegar við komum, komumst
við að því að það var nóg af dýnum og
lökum fyrir alla, þarna var illa farið með
dýrmætt fatapláss. Því næst var mótið
sett, opnunarhátíðin var ekki í minna lagi
því hátt í þúsund lið tóku þátt í mótinu,
bæði karla- og kvennalið frá öllum
heimshornum.
Krefjandi oy fjölbreytt fótboltavika
Við tók krefjandi en fjölbreytt fótbolta-
vika þar sem við öttum kappi við fjöl-
mörg lið frá ýmsum löndum. Við unnum
hvern leikinn á fætur öðrum og lögðum
til að mynda lið að velli frá Noregi, Sví-
þjóð, Englandi, Bandaríkjunum og Finn-
landi.
Við vorum með tvö lið, annað undir 16
og hitt undir 15 ára. Bæði lið unnu riðl-
ana sína nokkuð örugglega og komust
því áfram í 32 liða úrslit. Þaðan komust
bæði lið einnig í 16 liða úrslit en þar varð
eldra liðið að lúta lægra haldi gegn knatt-
spyrnuliðinu Rúnari frá Noregi. Þar með
var keppni þeirra lokið í mótinu þrátt fyr-
ir frábært gengi, enda ekki slæmur árang-
ur að vera í 16 liða úrslitum á svo stóru
móti.
Ynflpa liðið vann Dana Cup
öpugglega
Yngra liðið hélt þó ótrautt áfram og þok-
aðist í sffellu nær úrslitaleiknum sjálfum.
Smá misskilningur átti sér stað þegar við
héldum að við værum að fara að spila
undanúrslitaleikinn, þá vorum við komn-
ar pínulítið fram úr okkur því að þetta
var í raun 8-liða úrslit. Það kom þó ekki
að sök, þar sem við unnum báða 4-liða
úrslitaleikina. Þegar í úrslitaleikinn sjálf-
an var komið vorum við aldeilis ekki á
þeim buxunum að fara heim með eitt-
hvað annað en gullið. Okkur varð að ósk
okkar og burstuðum við norska liðið
Tertnes (Tertunes) í úrslitum 7-0, Það var
svo ekki til að draga úr gleðinni þegar
Elín Metta var kjörin besti leikmaður
mótsins.
Fjölbreytt dagskrá utan vallar
Það var ýmislegt fleira en fótbolti sem
við höfðum fyrir stafni. Haldin voru
diskótek á hverju kvöldi en við fórum
bara tvisvar. A seinna kvöldinu var
lokahátíð og flugeldasýning. Síðasta
kvöldið okkar í Hjprring þegar mótinu
var lokið fórum við svo saman út að
borða og getum við sagt sem svo að það
hafi verið mun betra en maturinn í mötu-
neytinu sem var kannski ekki upp á
marga fiska. Þegar kom að fatainnkaup-
um létum við okkar ekki eftir liggja og
var þar H&M aðallega fyrir valinu. Einn-
ig vorum við tíðir gestir á McDonalds
þessa vikuna.
Að morgni sunnudagsins 1. ágúst beið
okkar síðan langt ferðalag til Kaup-
mannahafnar með lest og þaðan til
íslands. Það voru þreyttar en kátar stúlk-
ur sem stigu út úr flugvélinni í Keflavík
seint um kvöldið. Segja má að við höfum
verið Val til sóma innan vallar sem utan.
Eftir Elínu Mettu, Lísbet, Katrínu og
Margréti Sifí3.fl. kvenna
86
Valsblaðið 2010