Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 118
Minning
frá. Hann var alla tíð sannur Valsmaður
sem fyrr á árum lagði hönd á plóg og skóp
ásamt öðrum með ötulu starfi sínu grunn
að því blómlega starfi og þeim góða anda
sem við þekkjum á Hlíðarenda í dag. Nú
þegar hundrað ára afmæli félagsins nálgast
verðum við sem í dag störfum fyrir félagið
að leggja áherslu á að halda á lofti sögu
Vals og nöfnum þeirra fjölmörgu Vals-
manna sem tóku virkan þátt í starfi félags-
ins í gegnum árin. Guðmundur vann árum
saman óeigingjarnt starf fyrir Val og fyr-
ir það vill Knattspyrnufélagið Valur þakka
við þessi tímamót. Allir Valsmenn standa
í þakkarskuld við þann góðan félaga sem
við kveðjum í dag. Ég vil hér fyrir hönd
Knattspyrnufélagsins Vals senda fölskyldu
Guðmundar Ingimundarsonar innilegar
samúðarkveðjur.
Höröur Gunnarsson, formaöur Vals
Hjálmar Breiðfjörð
Jóhannsson, pípu-
lagningameistari
fæddur 22. júli' 1922
dáinn 27. janúar Z010
Hjálmar var einn af þessum fjölmörgu
Valsmönnum sem unnu félagi sínu af heilu
hjarta. Segja má að hann hafi verið fædd-
ur Valsmaður. Hann kynntist Knattspyrnu-
félaginu Val á sínum yngri árum og æfði
og lék með félaginu á uppvaxtarárum sín-
um. Alla ævi sína fylgdist hann með sínu
félagi af miklum áhuga og sótti nær alla
kappleiki sem hann gat hvort sem þeir fóru
fram í Reykjavík eða úti á landi. Hjálmar
lét það ekki aftra sér á sínum síðustu ævi-
árum að sækja leiki Vals þó svo fæturnir
væru farnir að gefa sig.
Eiginkona Hjálmars var Guðmunda
Dagmar Sigurðardóttir og eignuðust þau
4 böm. Sem fyrr segir var Hjálmar ötull
fylgismaður Knattspyrnufélagsins Vals og
efalaust muna einnig fjölmargir eftir hon-
um þar sem hann sat á sínum bás í Kola-
portinu og seldi myndir eftir sig og önn-
ur handverk.
Knattspyrnufélagið Valur kveður og
þakkar Hjálmari Br. Jóhannssyni sam-
fylgdina og sendir fjölskyldu hans bestu
jóla- og nýárskveðjur.
K.H.S.
Unnur Jónasdóttir
fædd 23. maí 1923
dáin 1. desember 2010
Fallin er frá elskuleg, ástrík, hjartahlý og
kraftmikil kona, Unnur Jónasdóttir, 87 ára
að aldri, sem sannarlega tengdist okkar
ástkæra félagi sterkum böndum.
Hún giftist móðurbróður mínum, Her-
manni Hermannsyni, sigursælasta mark-
verði félagsins árið 1946 og bjó hún þeim
og einkadóttur þeirra Gunnfríði fallegt og
kærleiksríkt heimili að Sjafnargötu í miðju
Valshverfinu. Þau voru sannir höfðingj-
ar heim að sækja og þær voru ófáar gleði-
stundimar með þeim, enda bæði með
óvenju létta lund og verulega gestrisin.
Hermann var alla tíð gamansamur gleði-
gjafi og Unnur hláturmild og hressandi.
Það ríkti alltaf eftirvænting að heim-
sækja fjölskylduna, bornar voru fram
kræsingar af minnsta tilefni og Hermann
tók þá gjarnan upp fiðluna og skapaði
réttu stemninguna. Baðstofan á efri hæð-
inni var hálfgert minjasafn, að mestu tengt
glæsilegum knattspyrnuferli húsbóndans,
en hann hélt öllum sínum verðlaunagrip-
um vel til haga. Unnur stóð eins og klett-
ur við hlið Hermanns og studdi hann með
ráðum og dáðum og var aukinheldur á
kafi í alls konar félagsstarfsemi, nánast til
dauðadags.
Hún var á yngri árum í sýningarflokki
Ármanns í fimleikum og sýndi meðal ann-
ars á Alþingishátíðinni 1944 á Þingvöll-
um. Hún starfaði mikið fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og var gerð að heiðursfélaga í
Hvöt árið 1997. Hún var í 18 ár formað-
ur Mæðrastyrksnefndar og var árið 2001
sæmd Fálkaorðunni fyrir þau göfugu störf.
Þá var hún fyrsti formaður Lionsklúbbsins
ÝR í Kópavogi og mjög virk í safnaðar-
starfí Hallgrímskirkju. Með Unni er geng-
inn glæsileg og góð kona, sem studdi eig-
inmann sinn og Val af heilum huga. Það
var því engin tilviljun að þegar Gunnfríð-
ur dóttir þeirra lét skíra frumburðinn sinn
þá var hann skírður Valur Snær.
Ég vil fyrir hönd okkar Valsmanna og
ekki síst öllum þeim sem kynntust þeim
hjónum þakka fyrir frábær kynni og megi
minning þeirra beggja lifa um ókomin át í
hjörtum okkar allra.
Blessuð sé minning Unnar Jónasdóttur.
Hemmi Gunn
Valsblaðið 1973
REGLUSEMI
Meira til gamans verður látin fylgja hér með samþykkt sem gerð var í Val fyrir um
25 árum og er í gildi enn, a.m.k. hefur hún ekki verið felld niður að því er bezt er
vitað. Hún er þannig:
1. Að leikmenn í fyrsta aldursflokki neyti ekki víns tveim vikum fyrir mót eða
einstaka leiki, svo og meðan mót stendur yfir.
2. Að algert bindindi sé á íþróttaferðalögum Vals, þar til síðasti leikur hefur verið
leikinn.
3. Að í öðrum aldursflokki verði algjört vínbindindi.
4. Að þeir piltar einir í 3. fl. sem ekki reykja komi til greina í kapplið.
5. Að á æfingum í fjórða flokki verði drengjunum ekki þolað að hafa í frammi
ljótt orðbragð eða ósiðlega framkomu og að vítt verði þegar í stað þar sem brotið fór
fram, með aukaspymu eða vítaspymu.
6. Að allir þeir, sem mæta fyrir félagið á einhverjum vettvangi, séu ekki undir
áhrifum áfengis.
Fn'mann Helgason
118
Valsblaðið 2010