Valsblaðið - 01.05.2010, Page 17

Valsblaðið - 01.05.2010, Page 17
Dagny Arnþorsdottir og Sveinn Stefánsson með börnum sínum, Sveini Aroni og Söru Sif. fjölskyldan lét ekki sitt eftir liggja. „Reynir Vignir þáverandi formaður Vals re'ði mig sem framkvœmdastjóra félagsins í júlí 2001, samhliða því sem ég kláraði síðustu önnina í viðskipta- frœðinni. Við tók tími þar sem vinnudag- urinn hófst kl.08:00 og lauk um miðnœtti alla daga vikunnar. Þarna kynntist ég því frábœra starfsfólki sem vann hjá félaginu á þeim tfma; Sverri, EIlu Betu, Baldri, Brynju og svo seinna Svani og Dodda. Þau eru eitthvað það besta starfsfólk sem ég hef unnið með fyrr og síðar að öðrum ólöstuðum. Það var með ólíkindum hvað þessu fólki var annt um félagið. Oftar en ekki dró tnaður sína nánustu í hin ýmsu sjálfboðastörf á þessum tíma. Eg man að eitt árið vorum við seinir með útgáfu á Valsblaðinu og ég gat ekki hugs- að mér að helstu Valsmennirnir fengju ekki blaðið fyrir jól. Á aðfangadag fór ég því með fjölskylduna að keyra út Vals- blöð og eftir svona 100 blöð þá spurði Dagný mig hvort þetta vœri nú ekki að verða ágœtt! “ „Þegar ég kom til starfa lijá félaginu held ég að botninum hafi verið náð fjár- hagslega og að sumu leyti félagslega líka, því allt starfið litaðist á þessum tíma aferfiðum fjárhag og erfitt var að fá fólk til að starfa íþví umhverfi. Sem beturfer höfirni við verið sérlega heppnir með þá formenn sem hafa valist til að stjórna félaginu í gegnum tíðina og þess vegna erum við að uppskera ríkulega með þá aðstöðu sem við eigum í dag. Það var mjög lœrdómsríkt fyrir mig sem nýút- skrifaðan viðskiptafrœðing að koma að rekstrinum á þessum tíma, fyrst með Reyni Vigni, síðar Grími ásamt Herði núverandi formanni. Þessir menn eru hoknir af reynslu og ég lœrði gríðarlega margt af þeim. Eins og staðan var slœm árið 2001 var ég virkilega stoltur af því að hafa tekið þátt íþeim viðsnúningi sem varð árin á eftir. Félagið var skuldlaust þegar ég lauk störfum sem var mikill áfangi og er ég stoltur að hafa tekið þátt í þvi'. “ Það er óhcett að segja að það hafi ver- ið hugsað um hverja krónu á þessu tíma og ekki sjaldan sem maður talaði um hvað maður þyrfti að safna mörgum dós- um til að borga þetta og hitt. Mér er minnisstœtt þegar við Grímur Sœmundsen settumst niður einn daginn með leikmönnum eftir að hafa fallið nið- ur um deild 2001 og sömdum við u.þ.b. 10 leikmenn þar sem enginn fékk fasta greiðslu heldur bara bónus ef við kœm- umst upp í efstu deild. Þetta lið spilaði frábœran fótbolta sumarið 2002 með uppalinn Valsmann í nánast hverri stöðu." Eins og ég sagði fyrr þá voru þetta fjögur lœrdómsrík ár, Sveinn Aron hefur vœntanlega notið góðs af starfi mi'nu hjá Val, hann eyddi miklum tíma á Hlíðar- enda á þeim tíma og leiddist það ekki. Þetta var vissulega engin vinna frá 9-5, vinnutíminn var mjög óhefðbundinn og dagurinn oft langur. Það sem stendur upp úr er vinskapur við marga ágœtis einstaklinga og margir hverjir, mjög góð- ir vinir mínir í dag. Ég taldi mig ekki ná meiri árangri með rekstur félagsins með núverandi stjórnskipulagi og ákvað því að Ijúka störfum og prófa eitthvað nýtt.” Félagið hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðastliðinn áratug bæði hvað varðar aðstöðu og skipulag. Sveinn hefur sínar skoðanir á þeim breytingum. „Það er ekki spurning að félagið hefur þróast á jákvœðan hátt og aðstaðan er orðin hreint út sagt frábœr. Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi að sýna erlend- um og íslenskum gestum aðstöðuna und- anfarin ár og flestir eru þeir mjög hissa á hversu flott hún er orðin. Breyttar áherslur í skipuriti félagsins voru á viss- Valsblaðið 2010 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.