Valsblaðið - 01.05.2010, Síða 48
HÍ/J
bera fegurðina ofurliöi
Meistaraflokkur karla í handknattleik 2010-2011. Efri röö frá vinstri: Gunnar Möller, Oskar Bjarni Óskarsson þjálfari,
Finnur Jóhannsson, Arnar Guðmundsson, Gunnar Haröarson, Konni kóngur, Ernir Hrafn Arnarson, Finnur Ingi Stefánsson,
Orri Freyr Gíslason, Einar Örn Guðmundsson, Fannar Þorhjörnsson, Heiöar Aöalsteinsson, Aron Guðmundsson, Heimir
Ríkharðsson, Valgeir Viöarsson og Sveinn Stefánsson. Neðri röö frá vinstri: Sturla Ásgeirsson, Jón Björgvin Pétursson, Ásbjörn
Stefánsson, Ingvar Guömundsson, Friðrik Sigmarsson, Hlynur Morthens, Anton Rúnarsson, Atli Már Báruson og Valdimar
Fannar Þórsson. Á myndina vantar Finn Inga Stefánsson.
íslandsmeistarar kvenna
í handbolta eftir langt hlé og
markvisst uppbyggingarstarf
í yngri flokkum
Skýrsla handknattleiksdeildar 2010
Meistaraflokkur kvenna
Meistaraflokkur kvenna náði eftir 27 ára
bið að verða íslandsmeistari eftir frábært
úrslitaeinvígi við Fram sem vakti mikla
athygli fyrir góðan handbolta og skemmt-
anagildi og varð það toppurinn á frábæru
tímabili hjá flokknum . Liðið varð einnig
deildarmeistari , liðið vann 24 leiki gerði
tvö jafntefli og tapaði aðeins einum leik
sem var síðasti leikur liðsins í deildar-
keppninni. Sá leikur skipti hins vegar
engu máli, vegna þess að liðið var þegar
búið að tryfgja sér deildarmeistaratitil-
inn.
Liðið fór líka í úrslit í bikarnum eftir
að hafa lagt Fylki og Stjörnuna og mætti
þar Fram. Bikarúrslitaleikurinn var góð
skemmtum en leikurinn tapaðist, það var
eitt mark sem skildi liðin að og var það
mark skorað sjö sekúndum fyrir leikslok.
Engu að síður frábært tímabil hjá
flokknum, tvö gull og ein silfurverðlaun.
Nokkrar breytingar urðu á leikmanna-
hópnum í sumar, Berglind íris Flansdóttir
gerðist atvinnumaður í Noregi, Katrín
Andrésdóttir flutti til Þýskalands, Brynja
Steinsen og Kolbrún Franklin eru að fara
að fjölga mannkyninu og Nína Björns-
dóttir og Soffía Gísladóttir lögðu skóna á
hilluna. Eins og lesa má er þetta mikil
blóðtaka fyrir liðið sérstaklega í ljósi
þess að liðið missti líka sex góða leik-
48
Valsblaðið 2010