Valsblaðið - 01.05.2010, Page 68
Matthías Guðmúdsson og Freyr Aléxanders
son í góðum gír á herrakvöldi Vals 2010.
VIÐ HÁSKÓLANN í REYKJAVÍK
BSc í ÍÞROTTAFRÆÖl
Þriggja ára grunnnám fyrir verðandi íþróttafræðinga. Námið er fræðilegt
og verklegt og áhersla lögð á að nemendur öðlist framúrskarandi þekkingu og
færni til að miðla henni í kennslu, þjálfun og stjórnun.
wr
v
MSc í ÍÞRÓTTAVÍSINDUM OG ÞJÁLF
(Exercise Science and Coachmg)
Framhaldsnám sem ætlað er þeim sem vilja sérhæfa sig i þjálfun keppnis-
afreksíþróttafólks og rannsóknum á sviði íþróttafræði.
rUN
og
átta sig á því að Valur er stórveldi, ásamt
KR stærsti klúbbur íslands, og menn
mega ekki gleyma því. Þegar menn klæð-
ast Valstreyjunni verða þeir að hafa þetta
í huga og leggja sig fram í samræmi við
það og takast af metnaði á við verkefnið.
Einnig verða allir sem kalla sig Valsara
að sýna og sanna að Valur er stórveldi.
Það er ekki nóg að vita það og segja að
Valur sé stórveldi, við verðum allir sem
komum að klúbbnum að haga okkur sem
stórveldi, t.d. stuðningsmenn. Menn
mega ekki láta mótlætið buga sig og það
má bara ekki gerast að Valur gefist upp í
leikjum þótt liðið lendi undir. Góð lið
koma síðan alltaf til baka eftir tapleik,"
segir Matti ákveðið.
Of mikil neikvæðni í
stúkunni
„Ég var meiddur í sumar og
sat mikið uppi í stúku og
fann mikið fyrir neikvæðni
frá stuðningsmönnum, það
hjálpar ekki leikmönnum inni
á vellinum. Við þurfum að fá
fleiri stuðningsmenn til að
hvetja liðið áfram og við
verðum að muna það að
jákvæðnin sigrar neikvæðn-
ina. Við þurfum að fara að
gera- Hlíðaranda að heimavallargryfju.
Það skiptir líka leikmenn miklu máli að
spila fyrir fulla stúku af stuðningsmönn-
um og ég vil hvetja þá til að vera duglega
að mæta næsta sumar og láta í sér heyra.
Það ætti ekki að vera mikið mál að fylla
völlinn á öllum heimaleikjum. Það er
ljóst að til er fullt af Völsurum sem við
þurfum að lokka á völlinn, en þá er líka
mikilvægt að Valur fari að vinna heima-
leiki og spila skemmtilegri fótbolta, þá
ætti að vera auðveldara að fylla völlinn,"
segir Matti af fullri einlægni.
„Ég hef alltaf litið á mig sem fótbolta-
mann og það skemmtilegasta sem ég geri
er að vera í fótbolta. Ég stefni að því að
klára ferilinn hjá Val og á sama tíma und-
irbúa mig undir að verða þjálfari hjá
félaginu, það er draumastarfið mitt. Ég á
mér þann draum að þjálfa meistaraflokk
hjá Val og mig langar einnig að þjálfa
yngri flokka, t.d. 2. og 3. flokk og taka
þátt í því að byggja upp til framtíðar,
kenna unglingum fótbolta og byggja upp
sterka liðsheild,“ segir Matti að lokum.
Valsblaðið þakkar Matta fyrir einægt
og hressilegt viðtal og óskar honum og
félögum hans góðs gengis á komandi
tímabili, á aldarafmæli félagsins.
Eftir Guðna Olgeirsson
MEd ( HEILSUÞJÁLFUN OG KENNSLU
(Health and Sport Education)
Framhaldsnám sem ætlaö er þeim sem vilja sérhæfa sig i heilsuþjálfun
og kennslu á sviði íþrótta. i
• Frábær kennsluaðstaða.
■ Mikil tengsl við atvinnulif og samfélag.
• Fjölbreytt atvinnutækifæri að námi loknu.
Valsblaðíð 2010
Kynntu þér námiö á