Valsblaðið - 01.05.2010, Page 75

Valsblaðið - 01.05.2010, Page 75
t>au unnu bostu afa-kin £ Sttar.Mi ^alvasko. f t ín róð frá vinntrí: Kalrín CuðrnundadíitUr IK, Cudbfórg UrngzáMtir ÍK vg Davlð HdgHon HSK. j nc4rí rú'imj ntv )iau Aigeir Öm HaUgrfin&Mjn FH. Guuiar Ht iðar iKirv-aJds- »n UMíÖ og l'ála önmdóuir KH Nokkrir verðlaunahafar á frjáls- íþróttamóti Gogga Galvaska. Pála Marie fékk verðlaun fyrir góðan árangur í langstökki og stórfína hlaupaskó að launum. er alltaf jafn notalegt að sjá þau í stúk- unni, einnig á ég góða vini sem láta sjá sig reglulega á leikjum. Þau standa með mér í gegnum súrt og sætt og eru alltaf til staðar. Lífið hjá mér snýst um fótbolta og mikilvægt að stunda íþróttina með stuðn- ingi fjölskyldu og vina.“ Fjölbreyttur ferill í fótbolta „Ég byrjaði 10 ára að æfa fótbolta í Haukum og var þá að æfa frjálsar íþróttir líka. Þegar ég var 14 ára einbeitti ég mér alfarið að fótbolta. Ég lék með þremur flokkum og spilaði minn fyrsta meistara- flokksleik 14 ára. Ég spilaði miðju í Haukum og fékk einu sinni eða tvísvar að líta rauða spjaldið í Haukabúningnum. Ég var valin í U17 og U19 sama ár, 15 að verða 16 ára. Ég á því hátt í 30 landsleiki með yngri landsliðum og þar lék ég alltaf sem miðvörður. Ég kom í Val veturinn 2002 en þá var Valur um miðja deild. Mér var hent í byrjunarliðið við hliðina á Rósu Júlíu og fleiri góðum kempum og hef spilað nánast alla leiki síðan í vöm- inni. Fyrsta árið mitt í Val urðum við í 3. sæti í deildinni. Arið 2005 sleit ég kross- bönd við sáralitla hreyfingu, viðbjóðs- lega leiðinlegt en eftir aðgerð og 8 mán- aða endurhæfingu var ég mætt aftur og meiðslin hafa ekki háð mér síðan. Síð- ustu ár hafa verið dásamlega farsæl og skemmtileg, 6 Islandsmeistaratitlar og 4 bikarar.“ Skemmtileg atvik á vellinum „A mínum yngri árum í Haukum var heldur stuttur í mér þráðurinn og gul og rauð spjöld daglegt brauð, pabbi minn var farinn að sjá þegar gul og rauð spjöld voru framundan og mæltist til þess að svört spjöld yrðu tekin upp. Það væru þá brot með ásetningi. Rauðu spjöldin eru sem betur fer núorðið orðin ansi sjaldgæf hjá mér. Annað sem ég man eftir að að eitt sumarið gerði Guðbjörg markmaður ekki annað en að fá höfuðhögg og oftar en ekki var hún hálfvönkuð í markinu. En eitt sinn í Frostaskjólinu rotaðist Gugga alveg og enginn varamarkmaður. Laufey Olafs. vippaði sér í hanska og þurfti að verja markið í 7-8 mínútur og i minningunni hófst linnulaus skothríð á markið og við tóku lengstu 7 mínútur hjá mér á ferlinum.“ Skrykkjóttur landsliðsferill „Ég á farsælan landsliðsferil með yngri landsliðunum en A-landsliðsferill minn er ekki upp á marga fiska eftir að Sigurð- ur Ragnar tók við landsliðinu. Hann virð- ist ekki hafa mikið álit á mér og lítið er við því að gera. Mér finnst ég þó verð- skulda sæti í landsliðinu en hef ekki fengið tækifæri til að sýna eða sanna mig. Sigurður Ragnar var að gera nýjan samning við KSÍ og því hef ég ekki sett mér háleit markmið varðandi landsliðið.“ Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið í Val? „Mér líst vel á alla og hef trú á þeim, Gunnar Borgþórsson nýi aðalþjálf- arinn okkar og Svala eru einu nýgræð- ingarnir, aðrir hafa verið með síðustu ár. Gunnar er að fylla í ansi stóra skó og gaman að taka þátt í því með honum.“ Hvernig líst þér á yngri flokkana hjá Val í fótbolta? „Yngri flokkarnir eru fjölmennir og flottir og gaman að sjá metnaðinn sem verið er að leggja í þá. Þarna eru framtíðarleikmenn Vals og mikilvægt að halda vel utan um alla leik- menn. Það er mjög mikilvægt að meist- araflokksleikmenn séu sýnilegir og góðar fyrirmyndir. Það gefur krökkunum mikið ef við mætum á leiki hjá þeim og ættu allir meistaraflokksleikmenn karla og kvenna að girða sig í brók og mæta á fleiri leiki. Yngri flokkarnir mættu vera í meiri nálægð við leikmenn og fá fleiri tækifæri til að spjalla og spyrja þá spjör- unum úr.“ Hópmynd af meistaraflokki Hauka í knattspyrnu árið 2000. Pála Marie er 6. frá vinstri á myndinni. Hópmynd afA-liði 5.fl. Hauka á KS mótinu á Siglufirði þegar Pála var 12 ára. A-liðið lenti í 2. sœti og Pála Maríe er 2.frá hœgri í efri röð. Hvernig myndir þú helst vilja halda upp á aldarafmæli félagsins ef þú feng- ir að ráða? „Halda stórdansleik í Voda- fonehöllinni, hvað annað? Og með sem flestum íslands- og bikarmeistaratitlum á öllum vígstöðvum félagsins," Mottó í lífinu og í fótbolta? „Fínt að hafa Failure is not fatal, success is not permanent bak við eyrað.“ Heilræði til ungra iðkenda í íþróttum? „Mikilvægt er að mæta á æfingu með þau markmið að æfa sig og verða betri. Mæta á allar æfingar, vera lengur eða mæta fyrr og æfa sig í því sem maður er ekki eins góður í. Vera minna í tölvunni og meira út á sparkvelli." Við látum þetta vera lokaorðin en það er viðeigandi að enda á því að brýna unga iðkendur til dáða. Valsblaðið þakkar Pálu Marie fyrir áhugavert viðtal og óskar henni velfarnaðar á komandi keppnis- tímabili. Valsblaðið 2010 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.