Valsblaðið - 01.05.2010, Page 82

Valsblaðið - 01.05.2010, Page 82
hvert tímabil og vil að hver leikmaður viti sitt hlutverk í liðinu. Síðan hef ég einstaklingsviðtöl ásamt aðstoðarþjálfara við alla leikmenn í janúar og þá er farið í sterkar og veikar hliðar allra leikmanna. Síðan fá allar stelpurnar skriflega umsögn á uppskeruhátíð í lok hvers tíma- bils. Ég hef alltaf þjálfað með þessum hætti og það mega allir þjálfarar nota gögnin mín ef þeir vilja. Ég veit að nokkrir aðrir þjálfarar eru farnir að vinna á þessum nótum og ég er ánægð með þá þróun. Ég er gríðarlega þakklát fyrir að fá að gera það sem ég er góð í, þ.e. að vinna með bömum og unglingum og að kenna það sem ég lifi fyrir, fótbolta," segir Sossa af mikilli einlægni. 3.Jiokkun kvenna tapaði úrslitaleik á Islandsmotinu í sumar Sossa segir ákveðið að stelpurnar í 3. flokki hafi lært meira af þessum eina tap- leik sumarsins á móti Selfossi í úrslitaleik Islandsmótsins en í öllum öðmm leikjum sumarsins. „Þetta var í raun mjög hollt fyrir okkur öll, stelpurnar höfðu bara gott af því að tapa leik, því það er heldur ekki gott að vinna alltaf allt. Þarna rákust þær á vegg og skýringamar geta verið marg- víslegar. Það var örugglega vanmat í gangi, bæði hjá mér og stelpunum þótt við hefðum undirbúið okkur vel fyrir leikinn. Við vomm hreinlega of kærulaus- ar fyrir leikinn og ekki tilbúnar í átökin sem biðu okkar á vellinum. Það sat ömgglega í okkur að í undanúrslitum unnum við lið 12-0 sem Selfoss vann bara 3-1. Ég sagði samt við þær að þetta væri nýr leikur, en þetta tap kom stelpunum svo sannarlega aftur upp á tærnar. Ég gæti auðvitað talað um að dómgæslan hefði verið ósanngjöm í leiknum en mörg vafa- atriði í leiknum féllu með Selfyssingun- um, en það þýðir ekkert að væla út í dóm- gæsluna. Við setjum þetta í reynslubank- ann,“ segir Sossa eftir stutta umhugsun. Fjölskyldan á góðri stund. Frá vinstri: Hans Kristján Scheving, Soffía Amundadóttir, Selma Dís Scheving og Sindri Scheving. ann þar sem hann beinlínis ætlar að reyna að kenna þeim að nýta skipulagið sem verið hefur í kvennaboltanum í Val. Mér líst rosalega vel á þessa ráðstöfun. Núna loksins í langan tíma eru ekki þjálfara- skipti á haustin og er það svo sannarlega þróun í rétta átt. Það hefur líka verið ánægjulegt að fylgjast með Donna og Igori í strákaflokkunum og eru þeir að gera svakalega góða hluti og eru orðnir miklir Valsarar." I kvennaboltanum segir Sossa að mik- ið hafi verið lagt upp úr því að kenna Valshjartað og kenna þeim að vera Vals- arar. „Við segjum stelpunum okkar að við ætlum að kenna þeim að vera Valsar- ar og þykja vænt um félagið sitt og Hlíð- arenda. Við reynum að þjappa stelpuhóp- unum saman með alls konar félagsstarfi og það skiptir mjög miklu máli upp á liðsheildina og stemninguna. Við höldum matarboð, förum í keilu, sund, bíó og höldum pizzupartí, skemmtikvöld. Þegar Sindri sonur minn var í yngri flokkunum var mjög sjaldan félagsstarf af þessu tagi hjá flokknum hans, varla nema einu sinni á ári en á sama tíma eru stelpurnar með eitthvað félagslegt a.m.k. einu sinni í mánuði í öllum flokkum, enda eru þjálf- ararnir almennt uppaldir og þekkja því til hvers er ætlast.“ Þriðii flokkur kvenna vann Dana Cup i sumar Stelpurnar í þriðja flokki Vals sem Sossa hefur þjálfað undanfarin ár hafa vakið athygli á undanförnum árum fyrir árang- ur og hefur liðið verið mjög sigursælt í gegnum tíðina. Það vakti mikla athygli í sumar þegar stelpurnar í 3. flokki unnu örugglega sigur á Dana Cup í sumar þar sem stelpurnar unnu örugglega alla leik- ina á mótinu. „Stelpurnar okkar stóðu sig frábærlega á mótinu, sérstaklega 1995 árgangurinn, en þar eru 6-7 mjög góðar og efnilegar stelpur og ég held að ég eigi aldrei eftir að þjálfa svona sterkan árgang. Stelpurnar vöktu gríðarlega athygli á mótinu og ekki síst að við spil- uðum hraðan og einfaldan fótbolta og héldum boltanum niðri. Útslit mótsins tala einnig sínu máli þar sem 15 ára liðið vann úrslitaleikinn 7-0 og eftir mótið fékk ég óteljandi pósta frá liðunum sem höfðu mikinn áhuga á því að kynnast starfinu hjá okkur. Einn meginmunurinn hjá okkur og flestum nágrannalöndum er að þar þjálfa foreldrarnir yngri flokkana í sjálfboðastarfi og þær eru með færri vikulegar æfingar og einnig taka liðin sér löng hlé. Hér er líka haldið betur utan um hópinn, bæði af þjálfurum, foreldrafélagi og félaginu í heild.“ Metnaðaríullur og skipulagður þjálfari „Ég vil að stelpurnar hafi gaman af því að vera í fótbolta, haldi áfram og nái markmiðum sínum. Eins vil ég að for- eldrarnir séu ánægðir. Ég er gríðarlega skipulögð með bakgrunn sem leik- og grunnskólakennari, mjög ákveðin og fer fram á að leikmenn leggi mikið á sig. Aginn í þeim hópi sem ég er með er mik- ill og leikmenn vita að það þýðir ekkert að beygja mig. Ég er samt samvinnuþýð, alltaf stutt í húmorinn, flétta mikið leik og keppni inní allar æfingar,“ segir Sossa ákveðin. „Ég held leikmannafund fyrir 82 Valsblaðið 2010
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.