Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 94
Vel heppnaður
handboltaskóli
Vals
Handboltaskóli Vals var haldinn í
ágúst 2010 og var skólinn þrískiptur.
Yngstu krakkarnir í 1.-6. bekk voru
frá 9.00-12.00 og þeim var skipt í
þrjá hópa, 8. flokkur, 7. flokkur og
ó.flokkur. Námskeiðin fyrir þennan
aldur voru tvö, 9.-13. ágúst og 16-
20. ágúst og mættu um 65 krakkar á
bæði námskeiðin þar sem farið var í
ýmsa handboltaleiki, grunntækni og
að sjálfsögðu spilað. Miðhópurinn,
7.-8. bekkur var svo frá 12.30-14.00
og voru þau í tvær vikur og þar voru
18 krakkar sem fóru í flóknari atriði
og enduðu á skemmtikvöldi fimmtu-
daginn 19. ágúst þar sem Teddi töfra-
maður mætti og sýndi sínar bestu
hliðar. 9.-10. bekkur var svo frá
14.30-16.00 og einnig í tvær vikur
sem endaði svo á skemmtikvöldi þann
20. ágúst en sá hópur samanstóð af
um 20 krökkum úr 4. flokki Vals,
karla og kvenna og svo komu einnig
leikmenn úr öðrum félögum.
Gaman var að sjá áhugann hjá
krökkunum, allir hóparnir stóðu sig
vel og fengu góða og skemmtilega
kennslu. Ymsir góðir gestir kíktu í
heimsókn og má þar nefna Loga
Geirsson, Sturlu Asgeirsson, nýjan
leikmann Vals, Anton Rúnarsson,
Hrafnhildi Skúladóttur, Brynjar Harð-
arson og kennarar við skólann í ár
voru Oskar Bjarni Oskarsson, Mak-
sim Akbachev, Karl Erlingsson, Bald-
vin Fróði Hauksson, Alexander Júlí-
usson og Agnar Smári Jónsson.
Fjölmargir afmælis-
viðburðir í tilefni af 100
ára afmæli Vals árið 2011
Framundan er mikil afmælisdagskrá á
árinu 2011 en Knattspyrnufélagið Val-
ur verður 100 ára þann 11. maí. Gefið
verður út sérstakt Vals-almanak með
helstu viðburðum í tengslum við fjöl-
breytta afmælisdagskrá sem mun
standa yfir allt árið. Strax á þrett-
ándanum, 6. janúar, verður brenna og
ganga niður við Hlíðarenda og svo
rekur hver stórviðburðurinn annan.
Meðal atriða sem eru skipulögð er
afmælismót í handbolta, fótbolta og
körfubolta fyrir yngri flokka, golfmót,
bridge- og skákmót, nokkrir tónleikar
auk sérstakra tónleika fyrir yngri kyn-
slóðina. Sérstök dagskrá verður á
afmælisdaginn sjálfan sem ná mun
yfir þá viku alla um miðjan maí.
Afmælisrit Vals verður gefið út í til-
efni aldarafmælis félagsins. Eins verð-
ur Herrakvöldið með sérstöku og
glæsilegu sniði á afmælisárinu og
Valsblaðið 1959
BJARGVÆTTURINN
Senn er Valur hálfrar aldar gamall. Eins og önnur félög hefur hann séð tímana
tvenna á þessari löngu.ævi. Skipst hafa á skin úr skúrir. Stundum hefur allt leikið í
lyndi, en líka oft syrt í álinn. Þó mun útlitið aldrei hafa verið svartara en en upp úr
1920, en þá var í fullri alvöru um það talað í hópi Valsmanna, að leggja félagið nið-
ur, en meðlimirnir, þeir, sem það vildu, tækju sér síðan stöðu undir merkjum annars
félags. Einn var þó í hópnum, sem hvatti til þess að gefast ekki upp, hvað sem öll-
um erfiðleikum liði. Honum eigum við það að þakka, öðrum fremur, að Valur og
Valsfélagar eru staðreynd enn þann dag í dag. Þessi dugmikli félagi okkar sagði:
„Erfiðleikarnir eru til þess að sigrast á þeim. Þeir eru lagðir fyrir einstaklinga og
félög til þess að prófa manngildið og félagsþroskann. Sönnum þrek okkar og dugn-
að og félagsgildi, með því víkja öllum erfiðleikum til hliðar, sameinumst í að hefja
Val til vegs og gengis, stefnum að því markvisst að þoka honum fram í fremstu röð
íþróttafélaga þjóðarinnar."
Þetta voru orð á örlagastund, orð sem ullu straumhvörfum. Hætt var við að slíta
félagsskapnum, í stað þess var hafið markvíst átak til að efla hann og auka, með
þeim árangri að Valur varð, er stundir liðu fram, eitt af gagnmerkustu íþróttafélög-
um þjóðarinnar. Sá, sem þessi straumhvörfum olli, var Axel Gunnarsson síðar kaup-
maður. Axel gekk ungur í Val, varð snemma góður knattspyrnumaður, en vegna
meiðsla, sem hann hlaut í leik, varð hann að hætta að leika knattspyrnu aðeins rúm-
lega tvítugur.
Einar Björnsson
svona mætti lengi telja. Það er um að
gera að koma að Hlíðarenda og ná sér
í dagatalið sem kemur út um áramót-
in. Valsmenn á öllum aldri eru hvattir
til að taka virkan þátt í viðburðum á
afmælisárinu og njóta samverustunda
nteð félagsmönnum. Nánari upplýs-
ingar um atburði á afmælisárinu eru á
valur.is
94
Valsblaðið 2010