Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 107
Sveitarstjórar (yngri deild KFUM árið 1911. A myndinni standa m.a. íajtari röð fjórir
affrumstofnendwn Vals, þeir Guðbjörn Guðmundsson (3f.v.), Hallur Þorleifsson
(4f.h.), Jóhannes Sigurðsson (l.f.h.) og Stefán Ólafsson (4f.v.). Loftur Guðmundsson,
sem tók þátt íframhaldsstofnfundinum og varð l.formaður Vals, er 2f.h. ífremri röð
en fyrir miðri mynd situr sr. Friðrik Friðriksson.
mannsstíginn. Hann lagðist þó ekki gegn
leik þeirra en öllum mátti þó ljóst vera að
portið væri enginn framtíðarleikvangur
til iðkunar knattleikni. Brátt kom líka í
ljós að hugur piltanna stefndi lengra.
Þegar leið á vorið fóru þeir að venja
komur sínar suður á Mela, rétt við veg-
inn fram á Grímsstaðaholt. Þar var rýmið
meira, engar rúður í hættu en vara þurfti
sig á ósléttum melnum og grjóti sem nóg
var af. Einn helsti drifkrafturinn á bak
við þessa iðju var eigandi knattarins,
prentneminn Guðbjörn Guðmundsson.
Hann átti líka hugmyndina að því að
kanna möguleika á stofnun fótboltafélags
innan KFUM og boðaði á að giska átján
pilta á fund um málið fimmtudagskvöld-
ið 11. maí 1911. Því hefur hann sjálfur
lýst svo: „Aðeins tveir þriðju hlutar
komu, og af þeim, sem mættu, var aðeins
um helmingur, sem vildu taka þátt í slíku
félagi, eða alls 6“ Þessir sex frumstofn-
endur Vals voru allt piltar sem höfðu tek-
ið virkan þátt í starfi UD KFUM og voru
á aldrinum 16 til 19 ára.^ En til að efna
til stofnfundarins þurfti fyrst að fá leyfi
séra Friðriks. Við gefum honum orðið:
Það var sólskin og sumarblíða einn
dag í Maí 1911. Þá komu nokkrir
piltar til framkvœmdastjórans í
K.F.U.M. og spurðu, hvortþeir
mœttu ekki stofna fótboltaflokk innan
K.F.U.M. Hann svaraði því á þá leið,
að hann sœi ekkert sem tálmaði því,
það vœri sjálfsagt holl hreyfing; að
eins yrðu þeir að sjá til þess að allt
fœri siðlega og vel fram. Svo stofn-
uðu þeir flokkinn.6
Nokkra athygli vekur að séra Friðrik kýs
hér að tala um flokk frekar en félag og í
æviminningum sínum nefnir hann að
piltarnir hafi viljað „stofna knattspyrnu-
flokk á grundvelli K.F.U.M.".7 Hér er
ákveðinn blæbrigðamunur því flokka
stofna menn innan félags en félög við
hlið annarra félaga! Ekki þarf þó að fara
í grafgötur um að verið var að stofna
formlegt félag og að séra Friðrik leit í
raun þannig á málin einnig, að minnsta
kosti eftir að stofnunin var afstaðin, því
sjálfur talar hann um Fótboltafjelag
K.F.U.M. um miðjan júlí 1911.8 Það nafn
virðist hafa verið notað um félagið allt
frá upphafi og þar til Valsnafnið ruddi
því úr vegi upp úr miðju sumri eftir að
knattspymufélagið Hvatur hafði einnig
verið stofnað innan KFUM.
Hvað séra Friðrik Friðriksson varðar
þá var hann að sögn Guðbjörns „að halda
fund suður í Hafnarfirði" maíkvöldið
umrædda sem samþykkt var að stofna
hið nýja fótboltafélag innan KFUM. Séra
Friðrik var sem sagt fjarverandi og kom
ekki að stofnun félagsins að öðru leyti en
því að gefa vilyrði sitt fyrir stofnuninni
fyrirfram. Guðbjörn viðurkennir líka að
„í þessu máli“ voru þeir UD-piltar „hálf
feimnir“ við séra Friðrik þar eð þeir þótt-
ust vita að „hann hafði lítið álit á þessari
íþrótt“.9 Olíkt því sem margur hyggur var
það sem sagt ekki fyrir áeggjan séra Frið-
riks að félagið var stofnað og fyrstu vik-
urnar skipti hann sér ekkert af leik pilt-
anna. Hvenær þeir byrjuðu að æfa úti á
Melum er ekki fullljóst en í kjölfar stofn-
fundarins létu þeir ekki deigan síga held-
ur smöluðu fleirum í hópinn og efndu til
framhaldsstofnfundar sunnudaginn 28.
maí 1911. Einnig þá var séra Friðrik
fjarri góðu gamni, staddur á Seyðisfirði í
tengslum við Stórstúkuþing Templara.10
A framhaldsstofnfundinum bættust hins
vegar í hópinn á að giska átta piltar á lík-
um aldri og frumstofnendurnir sex og í
fyrstu stjórn Fótboltafélags KFUM (síðar
Vals) voru þá kjörnir þeir Loftur Guð-
mundsson formaður, Hallur Þorleifsson
ritari og Jóhannes Sigurðsson gjaldkeri.11
Tilvísanip
1 Lesbók Mbl. 16/10 1999.
2 Valsblaðið 1968, 29.
3 Sigurður Skúlason 1936, 9.
4 Sigurður Skúlason 1936, 8-9.
5 Guðbjöm Guðmundsson 1936, 14. Stofn-
félagamir sex vom: Filippus Guðmundsson,
Guðbjöm Guðmundsson, Hallur Þorleifsson,
Jóhannes Sigurðsson, Páll Sigurðsson og
Stefán Ólafsson.
6 Mánaðarblað K..F.U.M. í Reykjavík 4. tbl.
1927,3.
7 Friðrik Friðriksson: Starfsárin II, 100.
8 Friðrik Friðriksson 1912, 45: „„Sursum
Corda“ - Ræða flutt í Lágafellskirkju við
gönguför Fótboltafjelags K.F.U.M. sunnu-
daginn 16. júlí 1911.“ Ræðan er líka til í
handriti (Skjöl FF 202:67 og 236:14).
9 Guðbjöm Guðmundsson 1936, 14. Sjá einn-
ig: Valsblaðið 1969, 24-25. Hér er m.a. haft
eftir Guðbimi að sr. Friðrik hafí verið „heldur
tregur til að samþykkja þetta“ (bls. 24).
10 FF: Starfsárin II, 94-101. Hér nefnir sr. Frið-
rik að Valur hafí verið stofnaður á meðan
hann var á Austfjörðum í tengslum við þing
Stórstúku íslands í lok maí og á þar greini-
lega við framhaldsstofnfund Vals. Friðrik
getur þess jafnframt að hann hafí fyrst skipt
sér af Ieik piltanna úti á Melum eftir að hann
kom heim úr Austfjarðaferðinni í byrjun júní.
Studdi hann þá með ráðum og dáð eftir það.
11 Engin fundargerð hefur fundist frá stofnfundi
eða framhaldsstofnfúndi Vals en eftir því sem
næst verður komist má telja að auk Lofts
Guðmundssonar hafi eftirfarandi menn bæst
í raðir Vals á framhaldsstofnfundinum: Bjöm
Benediktsson, Einar Einarsson, Guðmundur
Helgi Bjamason, Guðmundur Kristinn Guð-
jónsson, Kristján Gtslason, Ottó Jónsson og
Guðbrandur Sveinn Þorkelsson.
Leiðrétting við Valsblaðið 2009:
Mynd til vinstri á bls. 57 er afGuðbirni
Guðmundssyni en ekki Lofti eins og segir
í myndatexta.
Valsblaðið 2010
107