Bjarmi - 01.12.2004, Qupperneq 26
Asker í Noregi þar sem þeirra beið
foringjaskóli til tveggja ára.
Foringjaskólinn er blanda af biblíu-
skóla og hefðbundnu bóknámi þar
sem kennd eru bókhald, stjórnun
og rekstur og þess háttar fög en
einnig er kennd guðfræði, kirkju-
saga, sálgæsla og sérsniðin fög
fyrir foringja. Láta þau mjög vel af
náminu. Eftir skólann voru þau
send til Bergen þar sem þau unnu i
Aftur og aftur kom lögreglan og
hvatti okkur áfram og sagði að mikil
breyting væri á krökkunum og að
þetta væri mikilvægt starf sem létti
undir með lögreglunni.
stúdentastarfi en þar hafði ekki
verið starf áður þannig að þar hófst
uppbygging frá grunni og var það
spennandi áskorun og jafnframt
mjög lærdómsrikt.
Seinna voru þau send til starfa á
öðrum stað í Bergen en þar var
búið að vinna undirbúningsvinnu að
stofnun nýs herflokks. Þetta var
mjög sérstakt hverfi, mikið um inn-
flytjendur með félagsleg vandamál,
eiturlyfjaneytendur og aðra sem
minna máttu sin og þar unnu þau í
tvö ár. Þarna var stofnuð ný kirkja
og fengu þau að sjá hvernig ætti að
vinna að slíkri uppbyggingu og
kenndi það þeim mikið. Þau unnu
mest með börnum og unglingum
og reyndu að ná í foreldrana i gegn-
um börnin. Mikið var um eiturlyf og
glæpi í hverfinu og fannst þeim það
erfitt til að byrja með enda mikil læti
í kringum krakkana. „Mér leist
ekkert á þetta og hugsaði bara að
nú færi ég aftur heirn," segir Siggi.
Rannvá tekur í sama streng og
segir: „Maður hefði þurft að hafa
eyrnatappa." Starfið var i skólanum
og fengu krakkarnir að vera í iþrótt-
um og spila á hljóðfæri þá daga
sem starfið var. Ekki löngu eftir að
starfið hófst kom lögreglan og
sagði að hún fyndi mikinn mun á
umhverfinu og þarna væri greini-
lega starf fyrir krakka og unglinga
sem héldi þeim við efnið og hvatti
hún þau til þess að halda áfram.
Rannvá segir: „Aftur og aftur kom
lögreglan og hvatti okkur áfram og
sagði að mikil breyting væri á
krökkunum og að þetta væri mikil-
vægt starf sem létti undir með
Nú finnum viö að Guð
er með okkur í þessu
öllu og styður okkur
þegar upp koma
vandamál.
lögreglunni. Umhverfið var mjög
sérstakt og munur á réttu og röngu
var þessum krökkum ekki skýr
enda margir foreldrar í neyslu og í
striði við ýmsa erfiðleika. í sumar
fórum við á mót og sáum marga
þessa krakka og breytingin er gífur-
leg. Þarna höfðu krakkarnir fengið
nýjar fyrirmyndir i starfsfólki
Hjálpræðishersins og sáu að það
var eftirsóknarvert að lifa svona lífi.
í dag biðja þessir krakkar mikið og
fá bænasvör.1' Þau taka bæði undir
að nokkuð erfitt hafi verið fyrir þau
að fara frá starfi þar sem hlutirnir
voru farnir að gerast áþreifanlega
en í dag hringja þau reglulega út og
fá að fylgjast með hvernig gengur.
Maður á að vera líkur
Jesú, allir eru jafnir og
við eigum að þora að
þvo fæturna hvert á
öðru og þjóna hvert
öðru.
En þetta var ekki auðveld vinna og
segja þau árásir djöfulsins hafa
verið miklar.
En nú eru þau komin til Akur-
eyrar og eru mjög ánægð með það
og spennt fyrir starfinu þar, þó svo
að starfið í Bergen hafi verið kvatt
með ákveðnum trega. Hér eru þau í
miklu öruggara umhverfi og tekur
Siggi það sérstaklega fram að hér
finnur hann sig heima. „Hér er
notalegt umhverfi og gott að vera
með börn og fjölskyldu og það er
ekki erfitt að byrja með nýja hluti
hér.“ Þegar þau eru spurð hvort að
það sé ekki ákveðinn þrýstingur að
vera komin heim og þurfa að sanna
sig er Siggi er ekki lengi að svara
því á einfaldan hátt: „Ég þarf ekkert
að sanna mig, það að sanna sig er
hugtak sem mér líkar ekki nógu vel
26