Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 45
Skýrsla
um störf Búnaðarfélags íslands
árin 1947 og 1948.
Ég mun hér eins og vant er gefa stutta yfirlits-
skýrslu um starfsemi Búnaðarfélags íslands síðast-
liðin tvö ár. Ég mun sérstaklega ræða þau störf, er
stjórn félagsins hefur aðallega haft afskipti af eða
ég haft með höndum sem búnaðarmálastjóri. Að öðru
leyti vísast til starfsskýrslna ráðunauta félagsins og
annarra starfsmanna, sem birtar eru hér á eftir.
Stjórn félagsins.
Á Búnaðarþingi 1947 var fyrrverandi stjórn Bún-
aðarfélags íslands endurkosin til næstu fjögra ára.
Stjórnin er skipuð þessum mönnum: Bjarni Ás-
geirsson, bóndi og atvinnumálaráðherra, Reykjum,
Jón Hannesson, bóndi, Deildartungu, og Pétur Otte-
sen, bóndi og alþm., Ytra-Hólmi. Stjórnin skipti
þannig með sér verkum, að Bjarni Ásgeirsson var
kjörinn formaður, Jón Hannesson varaformaður,
en Pétur Ottesen ritari félagsstjórnar.
I varastjórn voru kosnir þessir menn: Þorsteinn
Sigurðsson, bóndi, Vatnsleysu, varamaður Bjarna Ás-
geirssonar, Gunnar Þórðarson, bóndi, Grænumýrar-
tungu, varamaður Jóns Hannessonar, og Guðmundur
Erlendsson, bóndi, Núpi, varamaður Péturs Ottesen.
Þorsteinn Sigurðsson hefur árið 1948 mætt á flestum