Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 76
72
B Ú N A Ð A R R IT
Því, sem þá var eftir, skipti nefndin síðar milli
þeirra bænda á öskufallssvæðinu, sem að hennar dómi
höfðu minnsta aðstoð hlotið í hlutfalli við það tjón,
sem þeir höfðu orðið fyrir. Þessari úthlutun er tæp-
lega Jokið enn þá, en nánari greinargerð verður gefin
um liana síðar. Þess skal getið, að Árrti Jónsson var
ráðunautur nefndarinnar og vann með henni að öllum
þessum störfum, þótt hann væri ekki fastráðinn
starfsmaður hennar nema til júlíloka 1947.
Húsnæðismál félagsins.
í „Búnaðarþing 1947“, 38. mál, bls. 123, eru skráð-
ar síðustu tillögur Búnaðarþings varðandi húsbygg-
ingarmál félagsins. Stjórninni var þar falið að hefja
undirbúning að húsbyggingu á lóð þeirri milli Sölv-
hólsgötu og Skúlagötu, sem Alþingi hafði þá afhent
Búnaðarfélagi íslands til þess að reisa jiar skrifstofu-
byggingu. Jafnframt kaus Búnaðarþing 2 menn ásamt
stjórn félagsins í húsbyggingarnefnd. Til þess vorii
kjörnir þeir Bjarni Bjarnason, Laugarvatni, og Ólafur
Bjarnason, Brautarholti.
Hér skal með örfáum orðum skýrt frá starfi hús-
byggingarnefndar:
Nefndin fól arkitektunum Halldóri Jónssyni og Þóri
Baldvinssyni að gera athuganir uin það, hvernig koma
skyldi fyrir byggingu á lóð félagsins við Skúlagötu.
Þegar þeir liöfðu athugað þetta mál allnákvæmlega,
létu þeir það álit uppi, að þessi lóð hentaði mjög illa
til þess að reisa þar hús af þeirri gerð, sem hér er um
að ræða, þótt lóðin sé liin ákjósanlegasta til annarra
hluta. Byggingarnefndin féllst á sjónarmið þessara
sérfróðu manna um þetta atriði. Var þá hafist handa
að athuga um lóð annars staðar. Niðurstaðan af ]>ví
varð sú, að samningar náðust við stjórnarvöld
Reykjavíkurbæjar um lóð við Hagatorg vestan há-