Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 83
BÚNAÐARRIT
79
okt. Ég kom tvisvar að Hesti í Borgarfirði á þessu
tímabili og dvaldi þar þrjá daga í hvert sinn.
Skýrsla um hrútasýningarnar haustið 1947 og 1948,
ásamt greinargerð, liggur nú í handriti og bíður prent-
unar. Mun hún koma út í næsta hefti Búnaðarritsins.
Sauðfjárræktarbúin.
Eftirtalin sauðfjárræktarbú nutu styrks samkvæmt
búfjárræktarlögunum árið 1947: Svanshólsbúið, Ól-
afsdalsbúið, Hrafnkelsstaðabúið, Þykkvabæjarbúið,
Stafafells- og Brekkubúið og Rangárbúið.
Árið 1948 nutu sömu bú slyrks, nema Ólafsdals-
búið, en fjárstofninum þar var eytt með fjárskiptun-
um liaustið 1947, og búið Iagt niður um stundarsakir.
Á árinu 1948 var ákveðið að slofna tvö sauðfjár-
kynbótabú samkvæmt búfjárræktarlögunum. Búnað-
arsamband Dalasýslu óskaði eindregið eftir því, að
stofnað yrði aftur kynbólabú í Ólafsdal, og bauðst til
þess að styrkja búið eins og lög ákveða, á inóti ríkis-
sjóði. Samþykkti Búnaðarfélag íslands þetta. Rögn-
valdur Guðmundsson, bóndi i Ólafsdal, keypti i búið
s. 1. haust, í samráði við undirritaðan, 30 gimbrarlömb
og 2 hrúta af lcollóttu fé í Reykjarfjarðarhreppi, sem
c-r mjög hlandað gamla Kleifastofninum. Lömb þessi
voru frá Reylcjafirði, Vatnsfirði og Þúfum. Ég sá þau
eftir að þau komu að Ólafsdal. Þau voru yfirleitt vel
gerð og fremur væn.
Hitt kynbótabúið var stofnað á Valdalæk í Þverár-
hreppi í Vestur-Húnavatnssýslu. Guðm. M. Eiríksson,
hóndi þar, er þekktur fjárræktarmaður, sem átt hefur
vænsta og bezt ræktaða fjárstofninn í Húnavatnssýslu
siðan Ásgeir í Gottorp hætti fjáreign.
Ég sá fé hans áður en því var eytt s. 1. haust og
var það afburða vel rækaður stoi'n, því nær óblandað
Gottorpsfé.