Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 136
132
BÚNAÐARRIT
Það þairf ekki að fjölyrða um árangur tilraunar-
innar. Hann er augljós. Ammoníaksaltpétur er ágæt-
ur til grasræktar. Hvert kg af köfnunarefni í honuin
er fyllilega eins mikils virði og sama þyngd í kalk-
saltpétri og Brst-Am. Þegar hvert kg af köfnunar-
efni í kalksaltpétri kostar kr. 3.42, kostar það kr.
2.42 í ammoniaksaltpétri, miðað við verð áburðarins
vorið 1948 á hafnarbakkanum í Reykjavík. Eftir þessu
ætti að kaupa sein mest af þessum áburði, því haun
verður ódýrastur í notkun til túnræktar, vegna hins
háa innihalds af köfnunarefni, en það m. a. dregur
úr flutningskostnaði i'it um sveitir landsins, miðað
við aðrar tegundir áburðar, sem innihalda minna af
köfnunarefni.
Garðræktin.
Garðræktin er aðallega kartöflurækt, og hún höt'ð
eins og áður, eitt sumar í sama landinu. Forræktun,
bygg til þroskunar. Kartöfluakrarnir af svipaðri stærð
bæði árin.
Kartöfluræktin 1947 varð með töluverðum van-
höldum, eins og annað, en 1948 varð árangur ágætur.
Kartöfluræktin er fyrir utan tilraunir aðallega af 3
afbrigðum: Gullauga, Ben Lomond og Alpha.
Nú í vor var fyrir tilhlutun tilraunaráðs jarðræktar
byrjað á stofnræktun útsæðis hér í stöðinni. Til stofn-
ræktar er unnið með tvö afbrigði, Alpha og Ben Lo-
mond. Útsæði það, sem byrjað var með, reyndist
ekki alveg laust við stöngulveiki, gert var hópval i
ræktuninni nú í haust, er notað verður til stofn-
útsæðisræktar næsta sumar.
Einnig liafa hinar 3 tilraunastöðvar ríkisins hafið
stofnræktun af kartöfluútsæði, en með önnur afbrigði.
Tilraunir í kartöflurækt hafa verið allumfangsmiklar
þessi tvö ár. Þær hafa verið með áburð og afbrigði
kartaflna.