Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 150
7. Vestfirðir.
í Bolungarvík er gönnil girðing. Hún er allvel gróin,
en þarf þó endurbóta og lagfæringar við, bæði girð-
ingin sjálf og eins innan henníir. í Önundarfirði er
ný girðing, sem fer ágællega að. Þar grær mjög ört
upp, aðeins við friðunina eina.
I Kvígyndisdal og Sauðlauksdal er sandfok af völd-
um kvartssands, sem fýkur frá strönd Patreksfjarðar
og ótrúlega hátt upp í fjallið milli áðurnefndra bæja.
Reynt hefur verið að sá mel í þennan sand, sem virð-
ist ætla að þroskast þar seint og illa. Síðastliðið vor
var sáð sandfoxi (Brömus inermis) í þessa girðingu,
og greri það vel á fyrsta sumri, hvernig sem þvi svo
reiðir af framvegis.
S. Grímsstaðir ú Fjöllum.
Grímsstaðabærinn hefur tvisvar verið fluttur undan
sandfoki. Og enn herjar sandurinn að bænum, þar
sem hann stendur nú. Nú er verið að girða þar smá-
sandgræðslugirðingu, (i 7 km langa hringgirðingu.
Von er lil að þessi girðing bjargi bænum frá eyðingu.
.9. Dimmuborgir.
Dimmuborgir í Mývatnssveit voru girtar vorið 1942,
er það hringgirðing um 8 km á lengd. Einnig var
sama vor hlaðið allmikið af skjólgörðum á verstu
sandsvæðin, til skjóls hinum væntanlega gróðri. Síðan
hefur verið sáð á hverju vori í þetta sandsvæði, aðal-
lega melfræi, auk þess lítið eilt af sandfoxi vorið
1948. Þrátt fyrir mjög erfiða aðstöðu hefur gróðrinum
farið mjög vel fram, einkuin þó þeim gróðri, sem var
til staðar þegar girl var og hefur sandurinn ekki færst
neitt, svo teljandi sé, inn í Borgirnar síðan að girt var.
Dimmuborgir eru að því leili frábrugðnar fleslum
öðrum sandsvæðum, að hér er elcki um neitt „gósen“-
land að ræða og kemur ræktun aldrei lil greina á þessu