Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 214
Nautgriparæktarráðunauturinn
árin 1947 og 1948.
Sýningar.
Vorið 1947 voru sýningar haldnar á Suðvestur-
landi, en auk þess voru þau félög á Suðurlandi heim-
sótt, sem af einhverjum ástæðum höfðu ekki fengið
sýningu árið áður. Sýnd voru 35 naut, er fengu önn-
ur verðlaun. Þessi naut voru: Sjá töflu I.
Eins og skýrslan ber með sér, þá voru ýms af þess-
um nautum það gömul, að það áttu að vera til undan
þeim uppkomnar dætur, svo skera mætti úr um það
hvernig nautið reyndist, og hvort það ætti ekki fyrstu
verðlaun. En hér er aldurinn einn ekki nægjanlegur.
Þar sem hann var til staðar, vantaði upplýsingar um
dæturnar. Ýmist hafði skýrsla ekki verið haldin um
]>ær, þær voru seldar og tvístraðar, eða að mjólkin
liafði ekki verið fitumæld. Og enn ríkir sama óvissan
um þau af þessum nautum, sem lifa, eins og Hjálm
á Hvanneyri og Brand í Reykholti. Um dætur Hjálms,
er enn ekkert vitað, og um fitu mjólkurinnar úr dætr-
um Brands er ekki vitað svo úr skeri. Frá þessu er
Iei.tt að segja. Það er undarlegur tvískinnungur í
mönnuni, sem kaupa naut, oft dýru verði, til lcyn-
hóta, eiga það lengi, og leggja á sig fyrirhöfn og erf-
iði í því sambandi, að gera ekki ráðstafanir til þess
að fá úr því skorið til fullnustu hvernig dætur þess
eru.
Af þessum 35 nautum sem fengu verðlaun 1947,