Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 296
292
BÚNAÐARRIT
lmfi gert yður ljóst, að sauðfjárræktin í Finnlandi
rneð 1 millj. fjár er rnikils virði fyrir landið i heild,
og það sem einkennir liana er hversu smáar hjarð-
irnar eru. En sauðfjárræktin hefur mikla þýðingu
fyrir liinn finnska smábónda, og getur gefið lionum
nokkrar tekjur þótt aðaltilgangur hennar sé fram-
leiðsla til eigin nota afurðanna. Einkum á tímum eins.
og nú standa yfir, þegar landbúnaðurinn þjáist af
peningaleysi, er mikilsvert að sauðkindin gefi afurðir
til eigin nota og auk þess nokkrar tekjur með sölu
xdlar, skinna og kjöts.
Á þessa leið hef ég gert grein fyrir finnskri sauð-
fjárrækt í höfuðdráttum.
II.
Sauðfjárrækt og sauðfjárkynbætur í Finnlandi.
Hér að framan er lýst sauðfjárrækt í Finnlandi í
aðaldráttum, og þess getið, að einkennandi er, livað
fjáreign á hverju býli er litil, í mesta lagi 15—20 ær,
en oftast aðeins 2—5 ær. Éf lief þegar nefnt, að sauð-
fjártala í Finnlandi er alls 1 milljón, þ. e. a. s. ein
sauðkind á hverja 4 íbúa landsins. Nxi vil ég í þessu
erindi segja frá sauðfjárstofninum í Finnlandi, kyn-
bótum þar og meðferð, og þá einkum frá pelsskinna-
framleiðslunni.
í Finnlandi er rælxlað bara eitt sauðfjárkyn, finnska
féð, sem er af sama uppruna og islenzka féð. Undan-
larna áratugi liafa verið gerðar margar tilraunir með
ýms innflutt sauðfjárkýn, aðallega ensk fjárkyn, en
þau hafa ekki reynzt eins vel undir finnskum kring-
umstæðum, eins og eigin fjárstofn.
Árið 1919 var stofnað sauðfjárræktarfélag í Finn-
landi, og var tilgangur félagsins að vinna að kynbót-
um og bættri meðferð sauðfjárins. Síðar fékk félagið
nokkurt fjárframlag frá ríkinu og hefur það enn þá,