Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 36
Holtum og Vestur-Landeyjum. Þó ekki fyndist mosatorf í neinum mæli,
kom á óvart hversu víða í Vestur-Landeyjum eru þykk lög af tiltölulega
hreinu og lítið rotnuðu starartorfi, sem fróðlegt verður að sjá hvernig
kemur út við frekari skoðun.
Á árinu var áfram fylgst með tilrauninni á Hesti í Borgarfirði, þar sem
land er þurrkað með mismunandi gerðum lokræsa og gerði ég grein fyrir
niðurstöðum s.l. árs í tilraunaskýrslu Bændaskólans á Hvanneyri.
Umræða um gerð túnkorta hélt áfram á árinu, enda nokkur svæði þar
sem talsverður skriður er á þessu máli. Ég sat tvo fundi á Suðurlandi, þar
sem túnkortamálin o.fl. var rætt.
Ásamt fleirum var unnið að nýrri reglugerð í jarðrækt, en Alþingi sam-
þykkti ný jarðræktarlög í mars s.l.
Ég sat flesta fundi Búnaðarþings og aðstoðaði Axel Magnússon við að
rita fundargerðir. í febrúar sat ég Ráðunautafund B.í. og Rala og flutti
þar erindi um endurbætur og nýtingu túna. Ásamt Gunnari Guðmunds-
syni og Óskari ísfeld Sigurðssyni var ég skipaður í undirbúningsnefnd til
að sjá um Ráðunautafund 1988, ásamt fulltrúum frá Rala. Allmargir
fundir hafa verið haldnir og er undirbúningur í fullum gangi.
I lok ágúst sótti ég fund hjá Búnaðar- og garðyrkjukennarafélagi Islands
að Hvanneyri, en þar fjölluðu írskir fyrirlesarar á mjög athyglisverðan hátt
um nýskipan á leiðbeiningum og kennslu í landbúnaði á írlandi.
S.l. vor var ég prófdómari í jarðvegsfræði við Búvísindadeildina á
Hvanneyri.
Á árinu skrifaði ég grein í Frey um plógræsi og kílræsi og í mars kom út
fræðslurit um framræslu, sem ég skrifaði árið áður.
Æðarrækt
Síðasta ár var æðarbændum fremur hagstætt hvað varðar tíðarfar og ár-
ferði og dúntekjan varð því með betra móti. Þó mikið vanti á að dúntekja
sé eins góð og á fyrri hluta aldarinnar þokast í rétta átt og eru möguleikar á
aukningu næstu árin góðir. Áætlað er að útflutningsverðmæti æðardúns
hafi numið 40—50 milljónum króna á síðasta ári.
Eins og undanfarin ár er talsvert um það að einstakir bændur, ráðu-
nautar eða æðarræktardeildir óski þess að ég komi í heimsókn, skoði að-
stæður og leiðbeini um æðarvarp. Ég reyni að sinna þessum óskum og tek
þá fyrir ákveðin svæði svo að tíminn nýtist sem best. Á s.l. ári kom ég á 10
bæi í Kjalarnesþingi, 11 bæi í Austur-Skaftafellssýslu, 13 bæi í Suður-Múla-
sýslu, 5 bæi í Árnessýslu, 5 bæi í Norður- ísafjarðarsýslu og 20 bæi í
Strandasýslu. Á öllum svæðunum bar hæst erfið barátta við ýmiss konar
varg og kom glöggt í ljós nauðsyn þess að samstaða og samvinna sé um þau
mál, en þar gegna æðarræktardeildirnar miklu hlutverki, þar sem þær eru
virkar.
34