Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 127
mannfjölda Norðurlanda. Með sama áframhaldi tvöfaldast íbúafjöldi
jarðarinnar á 30—40 árum og gæti nálgazt 10 miljarða löngu fyrir miðja
næstu öld. Það er margbreytilegur lýður, hómó sapíens, sem við erum
hluti af. Þó er allt, sem máli skiptir, sameiginlegt með okkur öllum.
Allir þurfa t.d. land til að búa á, loft til að anda og mat til að éta. Landið
og loftið fáum við ókeypis og án fyrirhafnar. Matinn verðum við að laða
fram úr skauti jarðar með hjálp lofts og vatns og sólar. Sú iðja kallast
landbúnaður.
Hafa menn almennt gert sér grein fyrir því, að landbúnaður, sem er
stundaður á aðeins nokkrum hluta af þeim 30% af yfirborði jarðar, sem er
þurrlendið, leggur mannkyninu til 97% af matvælum þess? Hin 70%in,
sem er hafið, leggur til þau 3% sem eftir eru. Svo mikilvæg er ástundun
landbúnaðar.
Við sjáum þetta betur, ef við hugsum okkur dúkað borð með
fjölbreyttum matvælum í tilheyrandi ílátum. Við sjáum í einum stað skálar
með fæðu úr hinum ýmislegu korntegundum, hveiti, hrís og maís o.s.frv.
Við sjáum grænmeti og ávexti. Við sjáum hrokafull föt með kjötréttum af
hinum aðskiljanlegu húsdýrum manna. Og við sjáum allar mjólkurvörurn-
ar í krúsum og könnum að ógleymdum öllum drykkjarvörunum. Og allt er
þetta framlag landbúnaðar. En úti á horni borðsins er lítill diskur með
fiskmeti. Það er hlutur sjávarútvegs á matborði heimsins.
Þegar það er einnig haft í huga, að iðnaðarhráefni er að mestum hluta
fengið frá landbúnaði og skógarhöggi, sem er raunar hluti landbúnaðar í
víðri merkingu, þá er ekki að undra, að málefni landbúnaðar eru
fyrirferðarmikil í lífi manna og þjóða. Enda er það svo, að svokölluð
landbúnaðarvandamál eru alls staðar meginviðfangsefni og oft deiiuefni
stétta og stjórnvalda innan þjóða og milli þjóða. Það er af því, að þar er
verið að glíma við grundvöll mannlífsins — og mannlífið sjálft er ævarandi
vandamál.
Eg hef dregið upp þessa mynd af hlutverki landbúnaðar á heimsvísu af
því, að það getur verið hollt að leiða að því hugann við og við, að okkar
eigin landbúnaður er hluti af þessari heimsmynd og er, og hefur verið frá
öndverðu, að sínu leyti grundvöllur mannlífs hér á landi jafn ómissandi
eins og land til að standa á og loft til að anda. Að vísu leggjum við ekki
fram svo stóran hluta matfanganna, það gerir lega landsins hér í norðrinu.
Eigi að síður leggur innlendur landbúnaður til meiri hluta þjóðarfæðunn-
ar. Til þess að draga þá lífsbjörg úr skauti jarðar notum við 5—6% af
vinnuafli landsmanna, og fer sú tala hratt lækkandi.
Við héldum í sumar sem leið hátíðlegt hálfrar annarrar aldar afmæli
skipulagðra Iandbúnaðarsamtaka á íslandi, töldum það reyndar 150 ára
afmæli Búnaðarfélags íslands og héldum af því tilefni hátíðarfund Búnað-
125