Búnaðarrit - 01.01.1988, Blaðsíða 70
útbjó kynbótahluta mótskrár fjórðungsmótsins á Melgerðismelum, sat í
kynbótanefnd þess móts og vann við kynbótasýningar mótsins. Þann 10.
júlí dæmdi ég í landskeppni ungmennafélaganna í hrossadómum. Síðasta
hrossasýning sumarsins varð 27. ágúst að Lækjamóti í V.-Hún., og var ég
þar við dóma. Einnig hafa vitaskuld ýmsar óformlegar hrossaskoðanir átt
sér stað á árinu, t.d. ferðaðist ég um með Þorkeli Bjarnasyni og fleirum
þann 6. og meira þann 7. nóvember að skoða fola og folöld vegna Stóð-
hestastöðvar.
Ritstörf.
Megin ritstörf mín á árinu eru vitaskuld tengd ritinu Hrossarœktin og
þau verða að sjálfsögðu ekki tíunduð hér. í Ársriti Rœktunarfélags
Norðurlands birtist þó eftir mig grein á árinu; Um sögu og stöðu
hrossaræktar á Islandi. Tímaritið Bóndinn tók við mig viðtal um hrossa-
rækt, sem birtist í 4. tbl. 1986. Einnig birtist þar eftir mig grein um ýmis
hugtök kynbótafrœðinnar. Fréttamaður á útvarpsstöðinni Bylgjunni átti
við mig viðtal um hrossakynbætur fljótt eftir útkomu blaðsins. Ég vil
sérstaklega þakka ritstjóra Bóndans, Oddnýju Björgvinsdóttur, þá ágætu
umfjöllun, er þetta efni, hagnýting nútíma kynbótafræði í hrossaræktinni
og framtíðarmöguleikar búgreinarinnar, fékk á síðum blaðsins. Blaðamað-
ur frá tímaritinu Eiðfaxa átti við mig viðtal á fjórðungsmótinu á Melgerðis-
melum um kynbótahrossin þar. Það birtist í 7. tbl. ritsins 1987. Nú í lok
nóvember sendi ég síðan til sama tímarits grein um númeragjöf kynbóta-
hrossa, svar við grein, er þar hafði birst fyrr, en grein mín fær ekki rúm
fyrr en nú í janúarblaði 1988. Ég vann allmikið kynningarefni um
skýrsluhald í hrossarækt, sem notað var á landbúnaðarsýningunni í Reið-
höllinni í Víðidal, BÚ’87, og er nú með í undirbúningi erindi fyrir
búnaðarþátt rásar 1. Eins þáttar til tengdum ritstörfum mínum vil ég geta,
en á árinu tók ég sæti í ritnefnd Hestsins okkar, tímarits Landssambands
hestamannafélaga. Ég tók þar sæti fyrst og fremst sem hestamaður bú-
settur á Norðurlandi, en einnig sérstaklega vegna ræktunarmálanna. Ég
tók þó skýrt fram að gagnvart mér sem ráðunaut Búnaðarfélagsins sætu öll
hestatímaritin við sama borð og svo hefur verið þó ritstjóra Hestins okkar
hafi líkað misjafnlega. Á ritnefndarfundi þann 10. október síðast liðinn
tilkynnti ég síðan formanni hennar, Kristjáni Guðmundssyni, að ég myndi
ekki mæta á ritnefndarfundi fyrr en ákveðin mál væru leyst. Ég er félags-
maður í Létti á Akureyri; ákvörðun mín er þó alls ekki beint tengd vali á
landsmótsstað, sem þó einhverjir óvandaðir menn hika líklega ekki við að
láta í skína. Hitt er þó bjargföst skoðun mín að orð skulu standa og
drengskaparskyldan er ríkust skyldna. Ástæða þessarar ákvöröunar var
djúp gremja út í stjórn samtakanna, hverra Hesturinn okkar er málgagn,
vegna málsmeðferðar allrar við val á landsmótsstað, þá ekki hvað síst það
68