Heilbrigðismál - 01.09.2006, Síða 21

Heilbrigðismál - 01.09.2006, Síða 21
BLÁBER RÍK AF HOLLUSTUEFNUM Villt bláber er sú tegund ávaxta sem hefur að geyma mest af andoxunarefnum, sem talin eru geta bætt heilsuna og dregið úr líkum á krabbameini og öðrum sjúkdómum. Frá þessu er sagt íjúlíhefti tímaritsins Health. Þar kemur fram að í villtum bláberjum eru 13 mælieiningar af andoxunarefnum, gildið fyrir ræktuð bláber og trönuber er 9, brómber 8, jarðarber og hindber 6 og epli 4-6. Áður hefur verið sýnt fram á að dökk vínber eru rík af þessum mikilvægu efnum. HJÁLÆKNINGAR VINSÆLAR Meira en fjórði hver danskur krabbameinssjúklingur hefur nýtt sér óhefðbundna meðferð eða hjálækningar. Þetta kemur fram í viðamikilli rannsókn sem Danska krabbameinsfélagið hefur gert og birt var í maí. Sjúklingarnir gera þetta i þvi skyni að styrkja mótstöðuafl sitt, auka lífskraft sinn og Hfsgæði. Tveir af hverjum þremur telja sig hafa haft gagn af þessari meðferð. ÓBEINAR REYK- INGAR ALDREI SKAÐLAUSAR I skýrslu bandaríska land- læknisins, Richard H. Carmona, sem birt var í lok júní, er sagt fullsannað að óbeinar reykingar séu mjög skaðlegar heilsu fólks °g að til þeirra megi ár hvert rekja tugi þúsunda ótímabærra dauðsfalla Bandaríkjamanna sem ekki reykja. Hann segir að skipting í reyklaus svæði og reyksvæði veiti ekki næga vörn °9 að reyklaust umhverfi sé e'na lausnin. Hundruð rannsókna sýna að dbeinar reykingar eru hættu- legri en áður var talið. Dvöl í reykmettuðu lofti er alltaf skaðleg og eykur hættu á hjartasjúkdómum og krabba- meini. Áætlaður fjöldi dauðs- falla úr þessum sjúkdómum þar í landi er nálægt fimmtíu þúsundum. Að mati landlækn- isins eru börn i sérstakri hættu og meðal annars er vöggudauði tengdur reykingum foreldra. Hann telur mikilvægt að heimili verði algjörlega reyklaus. Á síðustu árum hefur mikið dregið úr mengun vegna óbeinna reykinga vestanhafs og er talið að það hafi bjargað miklu. Enn verður þó meirihluti Bandaríkjamanna fyrir tóbaks- reyk frá öðrum, ýmist á vinnustöðum, heimilum eða í lokuðum rýmum á öðrum stöðum. LÍKAMSRÆKT FYRIR BÖRN? Hvað er hægt að gera til þess að ung börn hlaupi ekki í spik? Eitt er að gæta að mataræðinu, annað að láta þau hreyfa sig nóg og enn annað að velja leikföng með þetta í huga. Vísindamenn við háskóla ( Indiana í Bandaríkjunum telja sig hafa sýnt fram á að þung leikföng eru betri en létt til að halda börnum í formi, auka brennsluna og styrkja hjarta og vöðva. Ef þetta reynist rétt er fundin einföld leið til að tvinna saman leik og líkamlegt atgervi. OFFITAN SKAPAR ÝMIS VANDAMÁL Erlendir fréttamiðlar fjölluðu mikið um það í júlí að vaxandi þyngd Vesturlandabúa eykur ekki aðeins hættu á sjúkdómum og dauðsföllum heldurskapar hún einnig ýmis vandamál, meðal annars fyrir heilbrigðis- þjónustuna. Sem dæmi má nefna að myndgreiningartæki eru ekki byggð fyrir mjög þunga sjúklinga og þykkt fitulag gerir sjúkdómsgreiningu erfiða og ónákvæma. Þá eru sjúkrahús farin að taka í notkun sjúkrarúm sem þola þyngri sjúklinga en áður og útfararþjónustur hafa einnig þurft að bregðast við þyngri og umfangsmeiri viðskiptavinum. TÓBAKSSALA HEFUR MINNKAÐ UM HELMING Sala á tóbaki á slðasta ári var um 1500 grömm á hvern fullorðinn (slending, en hafði verið rúm 3000 grömm þegar hún var mest, árið 1984. Þessa miklu lækkun má meðal annars rekja til þess að á árunum eftir 1984 var löggjöf um tóbaks- varnir hert verulega og var hún um tíma talin ein sú harðasta í heimi. Á þessum rúmu tuttugu árum hefur sala á reyktóbaki (píputóbaki) minnkað um 84%, vindlasala um 66%, sígarettu- sala um 47% og neftóbakssala um 30%. Hlutfall reykingamanna meðal fullorðinna íbúa hefur einnig minnkað um helming á sama tíma. Það var um 40% fyrir 20 árum en er nú um 20%. REYKINGABANN Á NÆSTA ÁRI Breytingar á tóbaksvarna- lögum, sem meðal annars banna reykingar á veitinga- og skemmtistöðum, voru sam- þykktar á Alþingi í byrjun júní með 42 atkvæðum gegn 3. Lagatextinn er svohljóðandi: „Tóbaksreykingar eru óheimilar í þjónusturými stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka, svo sem á veitinga- og skemmti- stöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram, þ.m.t. íþrótta- og tómstunda- starf. Sama gildir um tilsvarandi svæði utan húss séu þau ekki nægilega opin til að tryggja viðunandi loftstreymi." Lögin koma til framkvæmda 1. júní 2007. Þegar frumvarpið var til meðferðar á Alþingi fékk Krabbameinsfélagið það til umsagnar. í umsögn félagsins sagði meðal annars: „Það hefur verið baráttumál krabbameins- samtakanna ( meira en hálfa öld að draga úr skaðsemi tóbaks- reykinga með öllum tiltækum ráðum. Félagið hefurfyrir löngu bent á mikilvægi þess að reykingar verði bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum og styður því eindregið hugmyndir heilbrigðisráðherra samkvæmt frumvarpinu. Mikilvægt er að ísland fylgi fordæmi margra nágrannaríkja okkar í þessum efnum." BRÚNI LITURINN GETUR VERIÐ DÝRKEYPTUR í nokkrum borgum í Bandaríkjunum hefur börnum yngri en 16 ára verið bannað að fara í Ijós og ungt fólk á aldrinum frá 16 til 18 ára þarf skriflegt leyfi frá foreldrum. Frá þessu er sagt á fréttavef ABC í ágúst. Ástæðan er einfaldlega sú að mikil notkun Ijósabekkja, ekki síst á unglingsárum, eykur hættu á sortuæxlum í húð. Þeim sem vilja endilega verða brúnir er bent á brúnkukrem. Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameins- félags íslands greinast að meðaltali um 50 manns á ári hér á landi með sortuæxli í húð, um 50 með önnur húðæxli og rúmlega 200 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Tíðni húðæxla í heild hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum. NAUÐSYNLEGT AÐ SLAKA Á UM HELGAR Niðurstöður rannsóknar finnskra vísindamanna benda til þess að þeir sem nýta ekki helgarfríin til að hvíla sig eftir vinnuvikuna séu f meiri hættu en aðrir að deyja úr sjúkdómum þar sem streita er áhættuþáttur, svo sem hjartasjúkdómum og jafnvel krabbameini. I frétt Reuters um rannsókn- ina, sem kynnt var í júní, var vakin athygli á nauðsyn þess að nota helgarnartil að „hlaða batteríin" á ný með þvi að hvílast vel, í stað þess að stunda drykkju eða annað sem fer illa með andlega og líkamlega heilsu fólks. 21

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.