Samtíðin - 01.03.1943, Page 6

Samtíðin - 01.03.1943, Page 6
2 SAMTÍÐIN Þetta eru ekki jólabækur, heldur bækur, sem börnin yðar verða að eiga, bækur, sem gera börnin að betri börnum: Sérstök útgáfa fyrir unglinga, með nýju sniði. Klassiskar bókmenntir i sniUdarþýðingum og frumsamdar bækur upp- eldisfræðinga og kennara. Fyrstu fjórar bækurnar komu út fyrir jól og eru prentaðar á vandaðan, þykkan bókapappír. Ein, Mjallhvít, í þýðingu Tómasar Guðmundssonar, kom í fyrra og er nærri uppseld. Björnstjerne Björnson: KÁTUR PILTUR, þýdd af Jóni Ólafssyni, skáldi Hin nýja MJALLHVÍT, eflir Tómas og Disney. Selma Lagerlöf: MILLA, þýdd af Einari Guðmundssyni, þjóðfræðasafnara. Um þessar bækur er óþarft að fjölyrða. Þær eru allar heimsfrægar og óumdeilanleg listaverk. KÁTUR PILTUR er þýdd af Jóni .Ölafssyni, skáldi og ritstjóra, skömmu eftir aldamót, og munu flestir á einu máli um, að bókin verði ekki betur þýdd. Um bókina sagði einn gagnmenntaðas'ti og víðsýnasti íslenzkur bókmenntafrömuður nýlega, að bann hefði enga bók lesið jafnoft. MILLA er síðasta bók Selmu Lagerlöf og lýsir litilli stúlku, krypplingi, sem gerist svo góður dýralæknir, að undrum sætir. Það er ekki hægt að gera börnin yðar að betri börnum, ef þessar bækur fá engu áorkað. — TJÖLD I SIvÓGI lieitir frábær unglingabók eftir Aðalstein Sigmundsson, kennara. Hún lýsir sumardvöl ungra pilta í Þrastaskógi. Aðalsteinn fylgir liverju fótmáli þeirra frá morgni til kvölds, starfi þeirra, leikj- um og erfiðleikum; viðskiptum þeirra við silungana i Soginu, mýsn- ar i holunum og jafnvel flugurnar. Hver einasti dagur er spennandi skáldsöguefni, fullur af unaði og fegurð og heilbrigði. — Þetta er ágæt bók fyrir stráka. Eigið þér bælcurnar: Gullroðin ský, Æfintýri Odysseifs, Ferðalangar og siðast en ekki sízt Segðu mér sögu, eftir sira Jakob Jónsson?

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.